137. tbl. 1. árg.
Æskulýðssamband Íslands  hringir þessa dagana í fyrirtæki… 
og biður um stuðning í átak sambandsins  Herferð gegn ofbeldi. Mun herförin einkum eiga að  beinast að unglingum. Í stjórn sambandsins sitja heldur engir  aukvisar í hermálum. Frægastur þeirra er þó Sigvarður  Ari Huldarsson sem freistaði inngöngu í  Alþingishúsið í skæruliðabúningi og vopnaður  leikfangabyssum fyrir nokkrum árum. Þar var hann að vísu  yfirbugaður af öldruðum skjalavörðum þingsins. Tilefni  innrásarinnar var yfirvofandi samþykkt EES samningsins.  Sigvarður RiddAri var kominn fast að þrítugu  þegar þetta gerðist og eins gott að allsherjarnefnd Alþingis  frétti ekki af því enda væri hún þá sjálfsagt búin að  grípa til viðeigandi ráðstafana gegn fólki á þeim aldri.