Vefþjóðviljinn 42. tbl. 19. árg.
Hér var nýlega sagt frá kaupmanni sem er andvígur verslunarfrelsi sem hann nýtir sér þó sjálfur á sínu sviði.
En hann er ekki eini atvinnurekandinn sem er á þeim buxunum.
Líkt og áður hefur komið fram er Félag atvinnurekenda mjög andvígt frumvarpi sem afnemur einokun Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis. Þá afstöðu ítrekaði félagið í dag.
Félagið ber fyrir sig ýmis konar tæknileg útfærsluatriði ásamt því að ekki sé gert ráð fyrir að leyfðar verði auglýsingar á áfengi.
Hin raunverulega ástæða er hins vegar að innan félagsins eru heildsölur sem komið hafa sér þægilega fyrir í hillunum í ÁTVR. Þær óttast að missa spón úr aski sínum verði einokuninni aflétt og fleiri verslanir selji áfengi. Þá gætu alls kyns nýjungar og framþróun látið á sér kræla sem er ekki skemmtileg tilhugsun fyrir þá sem hafa hilluplássið í ÁTVR.