Föstudagur 14. september 2012

Vefþjóðviljinn 258. tbl. 16. árg.

Óeirðir hafa orðið víða í arabaheiminum síðustu daga, en þar hefur sumum mislíkað kvikmynd ein og segja þeir hana draga upp of neikvæða mynd af spámanni heimamanna. Allnokkrir hafa verið myrtir í óeirðunum, hús brennd og sendiráð sprengd. Í dag létust fimm.

Íslenska ríkissjónvarpið hefur nú sagt frétt af þessum ósköpum. Sú frétt var auðvitað eins og búast mátti við úr Efstaleiti.

Íslenska ríkisútvarpið sér auðvitað strax hverjum þarf að fletta ofan af. Það eru auðvitað kvikmyndagerðarmennirnir.

Strax í inngangi fréttarinnar er sagt frá því að um leið og hlutar úr myndinni hafi sést á netinu hafi múslimar „brugðist ókvæða við enda er þar dregin upp dökk mynd af þeirra helsta spámanni og hann sagður blóðþyrstur kvennabósi.“

Þetta er sem sagt allt skiljanlegt. „Enda“ er þarna dregin upp dökk mynd og hver getur látið bjóða sér slíkt án þess að brenna sendiráð og drepa fólk?

Og framleiðendur myndarinnar, íslenska Ríkisútvarpið áttar sig strax á því hvers konar menn það eru. „Leikstjóri myndarinnar sem sagður er egypskur kopti, búsettur í Bandaríkjunum, er farinn í felur. Svo virðist sem hann hafi þóst vera gyðingur þegar hann fékk fólk til liðs við sig og leitaði fjármögnunar.“

Þetta er augljóst aðalatriði í málinu. Fólk er drepið og hús brennd af því að einhverjum líkar ekki kvikmynd, og þá er auðvitað þýðingarmikið hvernig leikstjórinn stóð að fjármögnun. Það setur þetta í allt annað ljós. Menn vilja hafa svona fjármögnunarmál á hreinu.

En svo er auðvitað skiljanlegt að menn reiðist, ráðist á fólk og brenni sendiráð. „Jarðvegurinn er líka frjór, ólgan kraumar í mörgum ríkjum Mið-Austurlanda enda hafa fyrirheit arabíska vorsins ekki ræst nema að takmörkuðu leyti. Þegar tækifæri gefst til að skeyta skapi sínu á bæði yfirvöldum og Bandaríkjunum grípa margir það fegins hendi. Mótmælin sem blossuðu upp í Egyptalandi á þriðjudagskvöldið hafa haldið áfram að breiðast út í dag. Í Khartoum, höfuðborg Súdans létu mótmælendur sér ekki nægja að gera aðsúg að bandaríska sendiráðinu heldur líka því breska og þýska og var eldur lagður að því síðastnefnda. Í Túnis eru þrír sagðir hafa látist eftir uppþot við sendiráð Bandaríkjanna og tveir í Líbanon.“

Menn ættu að reyna að ímynda sér að kristnir menn stæðu fyrir slíkum hlutum til að mótmæla kvikmynd um Pál postula eða Krist á krossinum. Ætli nokkur hefði þá áhuga á að afsaka ofbeldismennina?