Fimmtudagur 15. júlí 2010

196. tbl. 14. árg.

E inhver leiðrétti Vefþjóðviljann ef það er ekki sama fólkið sem:

Er mest á móti prófkjöri innan stjórnmálaflokkanna en mælir með allsherjarprófkjöri undir nafninu persónukjör?

Taldi „málskotsrétt“ forsetans hið þarfasta þing en trylltist þegar hann var nýttur til að senda Iceasve lögin í þjóðaratkvæði.

Vildi þjóðaratkvæði um stórt og smátt en alls ekki um Iceave lögin.

Telur að hér hafi engar reglur verið á fjármálamarkaði og segir um leið að eftirlitið með að þessum engu reglum væri fylgt hafi brugðist.

Skammast yfir lánasúpunni sem fólk situr í en heimtaði sífellt meira lánsfé til fasteignakaupa og rýmri veðheimildir svo allir gætu keypt?

Taldi krónuna ónýtan gjaldmiðil en veðjaði á hana með því að taka lán í erlendri mynt?

Telur að allir kjörnir alþingismenn séu fífl en allir kjörnir stjórnlagaþingsmenn verði snillingar?

Vill halda uppi framkvæmdastigi hjá hinu opinbera í kreppunni en mátti aldrei heyra minnst á sparnað í góðærinu?

Vill hækka skatta í kreppunni en vildi líka hækka þá í þenslunni?

Vill að við stöndum við skuldbindingar okkar og greiðum skuldir annarra?