Mánudagur 26. janúar 2009

26. tbl. 13. árg.

S amfylkingarmenn hafa lagt mikla áherslu á kosningar því endurnýja þurfi umboð þings og ríkisstjórnar áður en nokkuð sé hægt að gera. Samfylkingin vill þó gera eina minniháttar breytingu áður en kosið er en það er að Alþingi samþykki breytingar á stjórnarskránni svo koma megi Íslandi án tafar í Evrópusambandið.

  • Herdís Þorgeirsdóttir, varaformaður samtaka evrópskra kvenlögfræðinga, sagði í einkaviðtali við Ríkissjónvarpið í gær að Ísland, eftir þrot bankanna þriggja, væri sambærilegt við Austur-Evrópu eftir hrun Berlínarmúrsins. Sama þörfin væri á „nýrri stjórnarskrá“. Svona talar varaformaður þessara merku samtaka. Hvað ætli kæmi ef viðtal fengist við formanninn? Hvert einasta viðtal við Herdísi dýpkar umræðuna hverju sinni. Verst hvað fátt lifir á því dýpi.
     
  • Ekkert hefur komið fram um neinn ágreining milli stjórnarflokkanna um efnahagsaðgerðir. Allir hlutaðeigandi segjast sammála um að þær séu það sem öllu skiptir. Samt vofa yfir stjórnarslit ef ekki næst „niðurstaða“ í dag eða morgun. En ekki niðurstaða um efnahagsaðgerðirnar sem menn láta samt eins og séu svo brýnar. Þetta hlýtur að vera Íslandsmet í ábyrgðarkennd án atrennu.
     
  • Fréttamenn sjá ekkert að því að viðræður Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar snúist jafnan um kröfur og skilyrði Samfylkingarinnar. Hefur Sjálfstæðisflokkurinn einhvern tíma sett fram einhverjar kröfur?
     
  • Það er ekkert við því að segja að eftir þingkosningar verði stjórnarkreppa, ef flokkum tekst ekki að ná saman um málefnasamning. En að hún sé búin til, þremur mánuðum fyrir kosningar, og ekki vegna málefna, er alger nýlunda. En stjórnarþátttaka Samfylkingarinnar var reyndar alger nýlunda líka, svo menn hafa kannski átt að vera viðbúnir þessu.
     
  • Einn frasinn sem oft er farið með, er að fá eigi Útlendinga til að taka að sér mikilvæg störf hér á landi. Hjá sumum eru Útlönd einn staður, Útlendingar allir klárir, hlutlausir og ráðagóðir nema Göran Persson, og ef að einhver Íslendingur segir í kappræðum að eitthvað sé „sagt um okkur í útlöndum“, þá svitna sumir landar hans. En ef að það á að fá útlenda sérfræðinga til starfa hér, hvernig væri þá að byrja á því að fá erlenda lögregluþjóna til að verja þinghúsið og aðrar opinberar byggingar. Og heyra svo hvernig „mótmælendum“ líkar. Það er sennilega ekki til það land í veröldinni þar sem menn fá slíka silkihanskameðferð og hér. Og allt í lagi með það, ekki þurfum við að gera allt eins og Útlendingar.
     
  • Samfylkingin er að molna niður. Samt er það hún sem stillir „samstarfsflokki“ sínum reglulega upp við vegg. Neitar að vinna að úrlausn aðkallandi efnahagsmála nútíðarinnar nema gengið sé að skilyrðum hennar um eitthvað allt annað. Og Sjálfstæðisflokkurinn lætur iðulega undan til að ná friði. Og aldrei er það launað með friði heldur er alltaf sótt áfram. Og aldrei sjá fréttamenn neitt óeðlilegt við kröfugerðirnar. Spyrja ekki einu sinni, enginn þeirra, hvort Sjálfstæðisflokkurinn geri einhverjar kröfur fyrir sitt leyti. Fréttamönnum gæti varla verið meira sama. Allt snýst um hvaða kröfur Samfylkingin geri hverju sinni, hvort þær séu úrslitakröfur og hve lengi hún „geti beðið“.
     
  • Það er aldeilis gott til þess að vita, á umbrotatímum, að í ríkisstjórn sitji flokkur sem bifast fyrir öskrandi stjórnarandstæðingum sem rökstyðja mál sit með glamri, málningu og bálköstum. Og að fréttamenn telji þennan hóp alltaf jafn merkilegan og fréttnæman. Furðulegt að flokkurinn, sem búinn er að lýsa því yfir að hann beygi sig auðmjúkur fyrir þessum hávaðahópi, mælist þó enn með 16 % fylgi. Séníin innan flokksins munu eflaust finna út, að skýringin á fylgishruninu sé þó ekki undanhaldið heldur það að ekki hafi verið hopað enn hraðar, hafi slíkt á annað borð verið mögulegt.
     
  • Furðulegt er að horfa á fréttamenn hópast að viðmælanda en spyrja aldrei lykilspurninga eins og: Hvers vegna? Hver segir það? Nú var það „þjóðin“ já, hvenær gerði hún það? Nú viljið þið gera þetta já, með hvaða heimild þá? Þú og hve margir aðrir eru á þessari skoðun? Nei, hversu margir hafa lýst henni yfir í eigin nafni en ekki annarra? Og svo framvegis. En fréttamenn mæta bara og eru að leita að „stórtíðindum“ og þeim má auðvitað ekki spilla með spurningum sem gætu kippt fótunum undan stórtíðindunum. Ef komin er fín frétt um að gerð sé tiltekin krafa um að eitthvað verði gert, þá vill enginn fréttamaður velta því upp að hugsanlega sé ekki einu sinni lagaheimild fyrir því að orðið verði við kröfunni, eða að „þjóðin“ hafi bara alls ekki gert slíka kröfu.
     
  • Lög og reglur á fjármálamarkaði eru á ábyrgð þingmanna sem einir ákveða þær og geta breytt þeim. Ríkisstjórn, sem starfar á ábyrgð alþingis, fékk ótal viðvaranir um að illa gæti farið fyrir viðskiptabönkunum en ábyrgð á rekstri þeirra sé vitanlega hjá þeim sjálfum en ekki stjórnvöldum. Sama gildir um svokallaða peningamálastefnu, sem er ákveðin með samþykki forsætisráðherra sem starfar á ábyrgð stjórnarþingmanna. Sumum mun þykja ýmislegt af þessu hafa „brugðist“. Þeir hinir sömu krefjast líklega afsagnar þeirra stjórnarþingmanna sem allt kjörtímabilið hafa látið þetta allt óátalið. Ragnheiður Ríkharðsdóttir er talin líklegust til þess að ríða á vaðið.
     
  • Sumum finnst Ragnheiður Ríkharðsdóttir lítill flokksmaður. Það er misskilningur. Hún er meiri flokksmaður en flestir, en hún starfar nú í sínum þriðja stjórnmálaflokki. Það er meira en flestir aðrir þingmenn geta státað af.
     
  • Búið er að breyta ljósastaurum í auglýsingapláss. Þar er að verki „nýtt lýðveldi“ og þar gilda nýju lögin, sem valinkunnu fagmennirnir munu setja okkur. Við vitum bara ekki ennþá hver þau eru.
     
  • Gylfi Magnússon veitti einkaviðtal í Ríkissjónvarpinu í gær. Það var kominn tími til. Þöggunin á Gylfa, allan laugardaginn, var svakaleg. En nú, loksins, fær fólk að vita hvað Gylfa Magnússyni, dósent, finnst. Og það var gott að Vilhjálmur Bjarnason aðjúnkt komst loks að hjá Agli því stundum hefur hann ekki komist í Kastljósið því Egill hefur verið þar viðmælandi sjálfur en þá hefur Egill jafnvel ekki verið til viðtals á Rás tvö alla vikuna og þurft að láta sér nægja þessa tvo vikulegu sjónvarpsþætti á kostnað skattgreiðenda.
     
  • Hvenær ætla Vilhjálmur og Egill annars að ræða það hvaða menn það voru eiginlega sem ráðlögðu almenningi að veðsetja sig með myntkörfuláni?
     
  • Og svo berast í morgun fréttir um að ofan á forna heift í garð pólitísks andstæðings sé draumur um forsætisráðherrastól að setja allt í uppnám, þremur mánuðum fyrir kosningar. Þessi furðulega stjórnarkreppa verður æ ótengdari almannahag.
     
  • Af hverju var Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að mestu hlíft við ádeilu í skemmtiþáttum Ríkissjónvarpsins í vetur, eins og raunar aðra vetur? Jú vitaskuld vegna veikinda hennar, það sér nú hver maður. Og af hverju snerist Spaugstofan síðustu helgi um eintóma árás á Geir Haarde, sem hafði greinst með krabbamein í vikunni? Jú, það er af því að undanfarin 20 ár hefur Ríkissjónvarpið sent út vikulegt stjórnmálaávarp Karls Ágústs Úlfssonar, á besta útsendingartíma hverrar viku. Enn hefur spaugmönnum ríkissjónvarpsins ekki tekist að finna neitt fyndið við framgöngu óeirðamanna eða annarra stjórnarandstæðinga. En stjórnvöld fá reiðilestur í hverjum þætti. Hvorki Samfylkingin né útrásarforsetinn náðu inn í áramótaskaupið heldur.