Miðvikudagur 18. apríl 2007

108. tbl. 11. árg.

E

JANÚAR 2007: Sérstaklega óviðeigandi að fá kostun frá Alcan!
JANÚAR 2007: Met í óskammfeilni að stjórnmálaforingjar komi fram fyrir þjóðina í boði Alcan.
MARS 2007: Psst, Rannveig, áttu þrjúhundruðþúsund kall?

nn hafa íslenskir fréttamenn hvorki haft það af að segja fólki frá, né spyrja forystumenn og ráðherraefni vinstrigrænna út í hið ótrúlega Alcan-söfnunarmál. Og er það mál þó afar merkilegt og upplýsandi fyrir það fólk er haldið er alvarlegum ranghugmyndum um Vinstrihreyfinguna „grænt framboð“.

Um síðustu áramót sendi Stöð 2 að venju út umræðuþátt sinn, Kryddsíld, þar sem forystumenn stjórnmálaflokkanna ræddu málin. Meðal þeirra auglýsinga sem íslenskar sjónvarpsstöðvar selja, er svokölluð „kostun“, og í þessu tilfelli var þátturinn í boði álfélagsins í Straumsvík, Alcan.

Þá staðreynd notuðu forystumenn vinstri grænna til þess að berja sér á brjóst, auglýsa heilagleika sinn og siðgæði umfram aðra menn. Helstu forystumenn þeirra mættu í fjölmiðla alveg óskaplega reiðir. Steingrímur J. Sigfússon sagðist kunna illa við þetta og þótti „sérstaklega óviðeigandi“ að fá slíka kostun frá „stórfyrirtæki sem stendur fyrir mjög umdeildum áformum“.

Ögmundur Jónasson var ekki síður fullur réttlátrar reiði. Hann sagði einfaldlega að slegið hefði verið met „í óskammfeilni og smekkleysu að stjórnmálaforingjar sitji frammi fyrir þjóð sinni í boði Alcan í kjölfar álinnpakkaðrar mútugjafar til Hafnfirðinga.“

Því hefur oft verið haldið fram, meðal annars í þessu blaði sem og af fyrrverandi formanni Alþýðubandalagsins, að margt bendi til þess að forystumenn vinstri grænna meini ekkert sérstaklega mikið með æsingaræðum sínum um umhverfismál. Í því ljósi og fleiri ljósum þætti sennilega flestum öðrum en íslenskum fréttamönnum áhugavert að skömmu eftir að að þeir fóstbræður, Steingrímur og Ögmundur, áttu vart til orð yfir því „meti í óskammfeilni og smekkleysu“ að „stórfyrirtæki sem stendur fyrir mjög umdeildum áformum“ styrki útsendingu umræðuþáttar, þá barst þessu sama stórfyrirtæki bréf. Þar var farið fram á að félagið styrkti hinn áruhreina flokk, Vinstrihreyfinguna grænt framboð, fjárhagslega vegna komandi kosningabaráttu. Undir bréfið ritaði Steingrímur J. Sigfússon.

Það er með öðrum orðum ekkert að því að fjármagna sína eigin kosningabaráttu með styrk frá álfélaginu en stórhneyksli að sjónvarpsstöð fái frá þeim hefðbundna „kostun“ þáttar.

Íslenskir fjölmiðlamenn hafa enn ekki náð því að spyrja Steingrím og Ögmund út í þetta. Enda sjálfsagt uppteknir við að verðlauna hver annan fyrir úttektir sínar og árvekni.

En svo er líka svo margt annað í fréttum sem skiptir miklu. Í gær gátu fréttamenn að vísu haft skotárásina í Bandaríkjunum sem fyrstu frétt. Önnur frétt Ríkisútvarpsins í gærmorgun var um það áríðandi mál að flugvellinum í Kairó hefði verið lokað tímabundið vegna sandbyls. Þeim upplýsingum fylgdi langur lestur um það á hvaða aðra flugvelli landsins vélum hefði verið beint.