Miðvikudagur 13. desember 2006

347. tbl. 10. árg.

Augusto Pinochet hershöfðingi féll frá um helgina og síðan hafa fjölmiðlar lesið honum pistilinn. Dæmigerð eftirmæli fékk hann í Spegli Ríkisútvarpsins í fyrrakvöld, en þar voru sömur nótur og aðrir íslenskir fjölmiðlar sungu í gær: Herinn steypti lýðræðislega kjörinni ríkisstjórn Salvadors Allendes og við tók ógnarstjórn Pinochets.

Eins og svo oft áður má ýmsu bæta við þessa nær samhljóða sagnfræði íslensku fjölmiðlanna, og það án þess að jafnframt sé tekið til sérstakra varna fyrir allt sem stjórnvöld í Chile höfðust að á valdatíma Pinochets. En um valdaskiptin í Chile árið 1973 má segja fleira en yfirborðskennd orð um blóðuga byltingu og lýðræðislega kjörna stjórn. Á síðasta ári kom til dæmis út stórfróðleg bók, Kommúnisminn, sögulegt ágrip, eftir Richard Pipes, fyrrverandi sagnfræðiprófessor við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, og segir þar eitt og annað um valdaskiptin í Chile. Í forsetakosningunum árið 1970 urðu þrír frambjóðendur nær hnífjafnir. Salvador Allende, studdur af sósíalistum og kommúnistum, fékk 36,3 % atkvæða en frambjóðandi hægrimanna hlaut 34,9 %. Í bók sinni segir Pipes:

Þar sem engum frambjóðanda tókst að tryggja sér hreinan meirihluta var kosningunni vísað til þingsins. Á næstu tveimur mánuðum komst Allende að samkomulagi við kristilega demókrata sem samþykktu að styðja framboð hans ef hann gengi að fáeinum skilyrðum sem skuldbundu hann til að halda stjórnarskrá Chile í heiðri, svo sem að virða lög og fjölræði í stjórnmálum. Skilyrðunum var lýst í lögum sem þjóðþingið samþykkti og höfðu yfirskriftina Lög um stjórnarskrártryggingar og þau gerðu Allende kleift að setjast í forsetastól.

Seta Allendes á valdastóli var þannig háð kvöðum. Hann reyndi þó eftir fremsta megni að ná fram róttækum markmiðum sínum. Námur, bankar og flestar framleiðslugreinar voru þjóðnýttar og það með tilskipunum, fram hjá þinginu. Launahækkanir voru fjármagnaðar með seðlaprentun og verðbólga komst í 300 % á ársgrundvelli. Ríkisstjórn Allendes lét sér ekki nægja að þjóðnýta mikilvægar atvinnugreinar, hún lét viðgangast og hvatti til þess að land yrði tekið af eigendum þess. Af því leiddi vitanlega að matvælaframleiðsla minnkaði mjög og þegar stjórn Allendes féll voru aðeins til í landinu hveitibirgðir til þriggja daga neyslu. Mótmæli og verkföll jukust stöðugt og lömuðu að lokum allar samgöngur og mikinn hluta efnahagslífsins.

Í ágústmánuði árið 1973 samþykkti fulltrúadeild þingsins með 81 atkvæði gegn 45 að Allende hefði „brotið stjórnarskrána með því að ræna völdum þingsins, skeyta engu um landslög og takmarka málfrelsi“, svo notuð sé endursögn Pipes. Fulltrúadeild þingsins fór fram á það við chileska herinn að hann endurreisti lög landsins og í samræmi við skipun þingsins þvingaði herinn Allende frá völdum.

Það er alveg rétt, að á næstu árum tók herinn engum vettlingatökum þá sem hann grunaði um að ætla að endurreisa fyrri stjórn, og það hvarflar ekki að nokkrum manni að  taka að sér að verja allt það sem herstjórnin hafðist að. En sagan í Chile er heldur ekki jafn einföld og fréttamenn vildu svo gjarnan.

Hin stórfróðlega bók, Kommúnisminn, sögulegt ágrip, fæst, eins og margar aðrar, í Bóksölu Andríkis og kostar þar aðeins kr. 1950 heim send.