Of lengi hafði hann alið manninn þar sem bókvitið er í kjaftaskana látið og vissi því ekki hve mennt er máttlaus En hitt vissi hann Það kom honum því verulega á óvart |
– Þórarinn Eldjárn, „Daglegt líf“. |
Meðal þeirra bóka sem út koma nú fyrir jólin er ljóðabók Þórarins Eldjárns, Hættir og mörk. Í bókinni eru ríflega fimmtíu ljóð, ýmist háttbundin eða í frjálsu formi, og flest eru þau líkleg til að hitta í mark hjá dyggum lesendum Þórarins, enda geyma þau það samband af skarpri hugsun, hæfilegum orðaleikjum og tungutaki skálds, sem ótal aðrar bækur höfundarins hafa gert hann þekktan fyrir. Og það ljóð sem tekið var herskildi úr bókinni og birt hér að ofan, er það ekki ágætis lýsing á fagmennsku nútímans, þar sem allt – einkanlega þó hjá hinu opinbera – gengur út á gagnslitla fagmennsku sem ekki athugar annað en það sem mæla má á kvarða? Ef verið er að ráða í opinbert starf, svo dæmi sé tekið, er þá ekki í raun bannað að horfa á persónulega eiginleika fólks? Er ekki bara byrjað að telja? Hver er með hvaða próf? Hefur einhver setið námskeið? Hvað hefur þessi skrifað margar greinar? Nú hefur hún verið í stjórnunarnámi, það er bara þannig! Einmitt. Þessi er hæfastur, nefndin er sammála um það.
En gallinn er að prófgráðurnar, starfsreynslan, greinaskrifin og allar þessar pappírsmedalíur, þær segja ekki endilega svo mikla sögu um raunverulega hæfni fólks. Eða svo notuð séu einföld orð Þórarins, þá er lífið sjálft daglegt en aldrei faglegt. Það er í raun ekki svo mikið vit í því að reyna að reikna út hæfni manna og halda að það verði sýnt fram á það opinberlega að þessi sé hæfari en hinn. Í flestum tilfellum verður sá sem velur í starf að byggja valið á innsæi sínu og, auk eðlilegs mats á áþreifanlegum atriðum svo sem reynslu, menntun og slíku, á mati á persónuleika umsækjenda og þá ekki síst á atriðum sem aldrei verða sett í opinberan rökstuðning. Rétt eins og raunverulegar umsagnir, sem koma að gagni, verða aldrei gefnar skriflega. Þó auðvitað geti sprenglærður maður verið ákaflega hæfur í starf, þá er það ekkert víst. Bókvitið ratar núorðið í kjaftaskana.
Í bók Þórarins eru margar litlar myndir af nútímanum. „Bundið slitlag“ er ein:
Menn ortu nýjan veg undir bundnu slitlagi eftir dalbotninum það er stórhreinleg sjón. Hlaðvarpar sem áður bjuggu Gamli vegurinn er að hverfa í gras Eftir því sem leiðir verða greiðari Um þetta má hugsa |
Hér þarf engu við að bæta, hvorki skýringum né útlistunum. Við sumt í bók sinni hefur Þórarinn þó bætt skýringum og skipta þær sumar talsverðu máli. Svo er um „Eðlisfræði“ en þar fylgir til skýringar tilvitnun í kennslubók frá sjötta áratugnum, Eðlisfræði handa unglinga- og gagnfræðaskólum, eftir Jón Á. Bjarnason, þar sem gefin hafði verið þessi sennilega skýring á gangi: „Gangur er í því fólginn að vér lútum fram á við, en forðumst fall með því að flytja fæturna á víxl hvorn fram fyrir annan“. Og Þórarinn segir:
Afstæðiskenningu Einsteins trúi ég ekki læt mér hana í réttu rúmi liggja enda fráleitt að við hinir vantrúuðu þurfum að axla sönnunarbyrðina. Af skammtakenningunni Með árunum aðhyllist ég |
Ínóvember tilkynnti meirihluti Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi að hann hygðist lækka bæði útsvar og fasteignagjöld á bæjarbúa. Útsvarslækkunin á Seltjarnarnesi, úr 12,46 í 12,35%, hefur raunar þau merkilegu áhrif að meðaltalstekjuskattshlutafallið á landinu öllu á næsta ári lækkar um 1,01% í stað 1,00%. Ríkið lækkar sitt hlutfall um 1,00% og meðaltalsútsvarið lækkar einnig vegna lækkunarinnar á Seltjarnarnesi. Er þetta í fyrsta sinn um árabil sem útsvar sveitarfélaga hefur jákvæð áhrif á meðtaltekjuskattshlutfallið í landinu, þökk sé Seltjarnarnesi. Útsvarið á litla Seltjarnarnesi verður mun lægra en í stærstu sveitarfélögum landsins, Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði, sem leggja á hámarksútsvarið 13,03%. Það hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir þá sem vilja sameina sveitarfélög til að ná fram stærðarhagkvæmni að lítið sveitarfélag eins og Seltjarnarnes skuli vera rekið með svo áberandi betri hætti en stóru sveitarfélögin í nágrenni þess.
Vefþjóðviljinn sagði að þessu tilefni að vonandi yrði þessi ákvörðun meirihlutans á Seltjarnarnesi um skattalækkanir öðrum sveitarfélögum til eftirbreytni. Og nú hafa Reykjavík, Garðabær og fleiri sveitarfélög fylgt þessu góða fordæmi og lækkað fasteignagjöld sín. Þetta sýnir hve mikilvægt það er að sveitarfélögin hafi samanburð og aðhald hvert af öðru.