Mánudagur 27. október 1997

300. tbl. 1. árg.
Þeir sem héldu að karlar kúguðu konur ekki fyrr en þeir slitu barnsskónum ættu að íhuga málið betur. Skv. þingsályktunartillögu Svanfríðar Jónasdóttur þingmanns Þjóðvaka þarf að grípa til aðgerða vegna þess að drengir taka svo mikinn tíma frá kennurum að það bitnar á stúlkum. Þessi tregða og fyrirgangur drengjanna kann að hafa neikvæð áhrif á félagslega stöðu og sjálfsvirðingu stúlkna að mati þingmannsins. Þingmaðurinn vill vitaskuld að sett verði á fót „nefnd fagfólks“ til að kanna málið og gera tillögur um úrbætur. Áhugamönnum um nefndarsetur er bent á að hafa þegar samband við yfirvöld menntamála til að missa ekki af sæti ef þessi mikilvæga nefnd tekur til starfa.

Annar þingmaður sem klauf sig úr Þjóðvaka fyrir síðustu kosningar en er nú kominn aftur heim,  Össur Skarphéðinsson, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um  að stofnuð verði sérstök „öryggismiðstöð barna“. Öryggismiðstöð þessi á að miðla upplýsingum til foreldra og kennara um það hvernig börn slasast að meðaltali en samkvæmt þingályktunartillögunni mun „samræmd tölvuskráning á barnaslysum jafnframt vistuð á vettvangi miðstöðvarinnar“.  Hér er um dæmigerða sýndarmennsku þingmannsins að ræða. Heldur hann virkilega að nokkrir opinberir starfsmenn í öryggismiðsstöð muni breyta einhverju til eða frá um það hversu mörg börn slasast? Líklegra er þó að fleiri börn slasist ef öryggismiðstöðin tekur til starfa því að við það verða foreldrar að verja enn meiri tíma í vinnu fyrir sköttunum. Þann tíma geta þeir ekki nýtt til að gæta barna sinna.