Föstudagur 1. ágúst 1997

213. tbl. 1. árg.
Václav Klaus, forsætisráðherra Tékklands, er einn merkasti…
stjórnmálamaður samtímans. Hann var varð fjármálaráðherra árið 1990 skömmu eftir Flauelsbyltinguna og forsætisráðherra tveimur árum síðar og var driffjöðurin í hraðferð Tékka úr eymd félagshyggjunnar. Nú hefur CATO Institute gefið út ritgerðasafn eftir Klaus. Ber safnið heitið RENAISSANCE – The Rebirth of Liberty in the Heart of Europe og hefur það að geyma 29 ritgerðir og erindi sem Klaus hefur samið og flutt á ensku. Bókin hefur hlotið mikið lof. Í nýju fréttabréfi CATO er vitnað í þrjá einstaklinga: Margrét Thatcher segir: „Klaus er eins merkasti stjórnmálamaður okkar tíma. Boðskapur hans er bæði kröftugur og hrífandi. Hann ætti ekki aðeins að heyrast í hjarta Evrópu heldur um heim allan.“ George P. Shultz, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Renaissance vera „heillandi blöndu af hugsjónum í orði og á borði eftir mann sem hefur látið verkin tala.“ James M. Buchanan, Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, segir: „Þessar ritgerðir sýna glöggt hve hugsjónir hafa átt mikið erindi í umbyltingarstjórnmálin í Mið-Evrópu. Aðrar þjóðir ættu að óska sér stjórnmálamanna sem hafa svo ríkan skilning á frjálsu þjóðfélagi.“ Bókin fæst bæði hjá CATO Institute og Laissez-Faire bóksölunni.


Í dag er eitt ár liðið, þrjú ár eftir…