Það var verulega ógeðfellt  að sjá í sjónvarpsfréttum í gærkvöldi… 
hvernig hreppnefnd Eyrarbakka fór  með hinn ástsæla gest sinn, Ólaf Ragnar Grímsson  forseta Íslands og fyrrverandi formann Alþýðubandalagsins.  Forsetinn hafði gert Eyrbekkingum þann sóma að mæta til  hátíðarhalda vegna 100 ára afmælis staðarins. Og hvernig  launaði hreppurinn honum greiðviknina? Forsetanum var gert að  mæta til sérstakrar hátíðarguðsþjónustu!  Þessi ósvífni tekur eiginlega engu tali, þjóðin öll veit,  að það er ekki lengra síðan en eitt ár að Ólafur Ragnar  sagði í útvarpsviðtali að hann væri sannfærður um að  guð væri ekki til. Spurður um trú sína sagðist hann trúa  svona einna helst á manninn. Það  er ekkert annað en dónaskapur að gera nokkrum manni að sitja  í á aðra klukkustund og hlusta á lofgjörð og tilbeiðslu á  aðila sem hann er sannfærður um að sé ekki til. Halda menn  að Ólafur Ragnar hafi ekkert annað að gera en að taka þátt  í svona löguðu? Og næst þegar forsetinn ætlar að heiðra  byggðarlög með nærveru sinni, hvaða ókurteisi ætli að  mæti honum þá? Leiklestur á fornum ummælum hans? Leiknar  Keflavíkurgöngur? Sýning á gömlum Þjóðviljaleiðurum,  undir nafninu Svart á hvítu? Sviðsetning BHMR-verkfallsins,  samninganna og bráðabirgðalaganna? Nei, nei og nei. Þeir sem  ekki kunna að umgangast forseta lýðveldisins af nægilegri  virðingu, eiga ekkert að vera að boða hann til sín.
Mánudagur 19. maí 1997
139. tbl. 1. árg.