Föstudagur 31. janúar 1997

31. tbl. 1. árg.

31. janúar 1997: Rannsóknarblaðamennska er ekki fyrirferðamikill hluti…
íslenskrar blaðamennsku. Þetta sést t. a. m. á því að blaðamenn virðast halda að hið fréttnæma í nýföllnum hæstaréttardómi sé að Vífilfell hf. hafi viljað nýta sér þær smugur sem það taldi hugsanlega vera í skattkerfinu lækka tekjuskatta fyrirtækisins. Það er hins vegar aukaatriðið varðandi þennan dóm. Aðalatriðið kemur ekki fram í fjölmiðlum nú, en það er að Vífilfell gat reynt að nýta sér tap vegna Fargs hf. (áður Nútímans hf.) vegna þess að þáverandi fjármálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson, sem á þessum tíma var í mikilli herferð gegn flestum sem reyndu að losna undan skattpíningu ríkisins, felldi niður skattskuldir fyrirtækisins. Þetta gerði hann degi áður en kaupin áttu sér stað, en að sögn án þess að hafa hugmynd um að þau stæðu til. Seljendurnir, sem áttu mikið í húfi vegna skuldanna, voru samstarfsmenn hans í ríkisstjórn, Steingrímur Hermannsson, Halldór Ásgrímsson og Finnur Ingólfsson, sem hélt uppi miklum vörnum vegna málsins í þinginu á sínum tíma. Nú er sem kunnugt er búið að verðlauna alla þessa menn rækilega fyrir, en hvernig ætli forseta Íslands, seðlabankastjóra og viðskiptaráðherra líði út af þessu? Þeir hafa svo sem engin iðrunarmerki sýnt svo þeim er sjálfsagt nokk sama.

31. janúar 1997: Ragnar Aðalsteinsson, lögverndaður lögmaður,…
ritaði greinargerð í Morgunblaðið í gær þar sem hann rökstyður þá skoðun sína að banna eigi Eimskipafélagi Íslands þátttöku í rekstri fyrirtækja á hluta flutningamarkaðarins. Þetta vill hann gera til þess að tryggja samkeppni! Það er grátbroslegt að hlusta á slíka röksemdafærslu. Þeir flutningar sem Eimskip stundar eru ekki háðir sérleyfum og því er öllum heimilt að etja kappi við fyrirtækið. Sama gildir hins vegar ekki um ýmsa aðra flutningastarfsemi, svo sem flug og fólksflutninga að ógleymdum málflutningi. Væri ekki nær að auka samkeppni með því að leyfa frjálsan aðgang að þeim mörkuðum sem eru lokaðir í stað þess að loka opnum mörkuðum eins og Ragnar vill? Ef Ragnar telur Eimskipafélagið hagnast ,,óeðlilega mikið á starfsemi sinni getur hann einfaldlega farið í samkeppni. ,,Put your money where your mouth is, eins sagt er. Það gerðu Árni Sigfússon og félagar í FÍB á tryggingamarkaðnum með góðum árangri fyrir bíleigendur. En Ragnar er líklega, eins og svo margir aðrir ríkisafskiptasinnar, meira fyrir að sitja yfir kaffibolla og tala um hvað aðrir eigi (og eigi ekki) að gera en að gera það sjálfur.