324. tbl. 1. árg.
|  Fyrir tveimur mánuðum var haldið þing  	Sambands ungra sjálfstæðismanna  	og tóku um 140 manns þátt í þingstörfum.  	Ungir sjálfstæðismenn hafa reynt að hafa sem fæst  	orð um þátttökuna enda varð hún þeim  	talsvert áfall og óþægilega áþreifanlegt  	dæmi um lægðina sem verið hefur í starfi SUS  	undanfarin ár. Urðu þeir flestir því heldur  	fegnir þegar fjölmiðlar sögðu ekkert frá  	þinghaldinu. Nú um helgina var hins vegar haldinn „landsfundur  	Kvennalistans“. Þar komu saman fimmtán konur sem hafa starfað  	lengi innan listans og þrjátíu aðrar sem vilja  	fá að komast í einhvern annan flokk sem fyrst. Með  	öðrum orðum, rúmlega fjörtíu konur voru  	á landsfundinum og fjölmiðlar voru fullir af fréttum  	af þessum viðburði og vinstri sinnaðir ritstjórar  	á trúboðsblöðum skrifa leiðara um stórkostleg  	pólitísk tíðindi frá þessum tæplega   	þrjátíu sem höfðu sitt mál fram. Þetta  	þarf ekki að koma mönnum á óvart, enda er  	svo komið, að fjölmiðlar hafa yfirleitt einungis áhuga   	á þeim sem tala um samfylkingu sósíalista eða  	kvarta yfir einhverju. Öðru segja þeir ekki frá.  	– Hér er þó rétt að undanskilja Morgunblaðið.  	Í hvert sinn er einhver segir eitthvað jákvætt  	um auðlindaskatt er greint frá því á baksíðu.     	
 Eins og fram hefur komið í öðrum  	fjölmiðlum er drykkurinn Jibbí frá Sól  	með 24,5% virðisaukaskatti, en sambærilegur drykkur Mjólkursamsölunnar,  	kókómjólk, „einungis“ með 14% virðisaukaskatti.  	Nú sjá flestir hversu fráleitt þetta er og vilja  	að þetta misræmi sé leiðrétt með  	því að jibbí-drykkurinn fái að njóta  	þeirra fríðinda að vera í 14% vsk. flokknum  	með kókómjólkinni. Vitaskuld væri það  	réttlætismál, en þó í raun engin  	lausn. Eina leiðin út úr rugli á borð við  	þetta er að allar vörur beri sama skatthlutfall og að  	ríkið sé ekki að ákveða fyrir fólk  	hvað því sé gott að innbyrða og hvað  	ekki. Slík neyslustýring hlýtur einungis að eiga  	heima í þjóðfélagi sem við viljum ekki  	búa í.              
 |