Lúpínuræktun er ódýrasti kosturinn… 
til að uppfylla skilyrði um bindingu  koldíoxíðs vegna aukinnar stóriðju hérlendis, að mati Dags-Tímans  í gær. Blaðið reiknar út að kostnaðurinn yrði  aðeins um 9 milljónir á ári fyrir heilt álver.  Nú er umdeilt hvort ástæða er til að hafa áhyggjur af auknu  koldíoxíði í andrúmsloftinu, en hitt er ljóst að hægt  væri að fara ódýrari leið en Dagur-Tíminn bendir á. Hún  er að lækka niðurgreiðslur til rolluframleiðslu  og minnka þannig ofbeit og þar með að auka gróðurlendi. 
Birgir Ármannsson lögfræðingur  Verslunarráðs… 
hefur að undanförnu bent á það í  fjölmiðlum að kostnaður sem hið opinbera leggur á  fyrirtæki landsins undir merkjum eftirlits sé orðinn  óeðlilega hár og hafi að minnsta kosti hjá R-listanum  í Reykjavík orðið svo mikill að fyrir honum sé engin  lagastoð. Birgir minnir á að fyrir nokkrum árum lagði  forsætisráðherra fram frumvarp sem takmarkað gæti útþenslu  eftirlitsiðnaðar hins opinbera, en það hafi ekki enn  fengið afgreiðslu. Hvetur Birgir til þess að dustað verði  af því rykið enda sé ljóst að það gæti orðið til  bóta.