Nú stendur yfir þing BSRB og er  eflaust… 
margt gáfulegt rætt þar. Á laugardaginn bar þar  hæst að bandalagið krefst þess að foreldrar ,,langveikra“  barna fái a.m.k. sérstakt tveggja mánaða frí á fullum  launum til að vera hjá langveiku barni sínu. Nú þykir  eflaust ýmsum sem þetta sé svo sjálfsagt að varla þurfi að  nefna svona tillögu oftar en einu sinni áður en menn hlaupa  til og fara eftir henni. Hver ætlar að vera á móti langveikum  börnum? Auðvitað er ekki nokkur maður á móti langveikum  börnum, en það réttlætir hins vegar ekki að vinnuveitendur  foreldra þeirra séu skyldaðir til að greiða þeim fyrir að  vera hjá börnum sínum. Töluvert skynsamlegra fyrirkomulag  væri að fólk kaupi sér tryggingu sem greiði þeim kostnað  vegna vinnutaps sem þau kynnu hugsanlega að verða fyrir vegna  veikinda barna. Langveik börn eru tiltölulega fá, kostnaður  tryggingafélaga yrði í heildina séð lítill og iðgjöldin  samkvæmt því. Slík tilhögun er mun eðlilegra kerfi en að  vinnuveitendur hverra foreldra taki þennan kostnað á sig. Og  er þá ekki horft til þess hver áhrif tillaga BSRB hefði á  atvinnumöguleika ungs fólks sem er að hefja búskap og  barneignir.
Ríkissjónvarpið sagði svo frá því á sunnudagskvöld að Ögmundur Jónasson alþingismaður Alþýðubandalagsins hefði þann dag verið endurkjörinn formaður BSRB með ,,rússneskri kosningu”. Það var vel við hæfi.