Í fréttum í vikunni hefur verið sagt  frá því að einhver stráði… 
45 kílóum af gamalli íslenskri mynt  á Ölfusárbrúna á mánudagsmorguninn. Þetta spaugilega atvik  minnir okkur á að íslenska krónan hefur rýrnað verulega  undanfarna áratugi. Árið 1988 þurfti til dæmis 560  krónur til að kaupa vöru sem kostaði 1  krónu árið 1960. Með öðrum orðum hafa útgefendur  myntarinnar, íslenska ríkið, svikið notendur hennar með  einstökum hætti og komist upp með það enda hefur ríkið  lögvarða einokun á útgáfu gjaldmiðils. Andstætt því sem  menn kunna að halda geymir sagan og samtíminn mörg dæmi um  að einkaaðildar hefi gefið út peninga. Þannig er t.d. í  Hong Kong í dag þar sem tveir einkabankar gefa út gjaldmiðil  sem að vísu er miðaður við gengi Bandaríkjadals.  Ríkisreknir seðlabankar urðu auðvitað til af því að  seðlaprentun er fljótleg leið til að ræna fólk og  stjórnmálamenn eru fljótir að þefa slíkar leiðir uppi.  Þegar ríkisstjórnir setja prentvélarnar af stað og auka  framboð peninga falla þeir í verði
Óli Björn Kárason  ritaði grein um einokun ríkisins… 
á útgáfu peninga í Frelsið árið 1989. Þar  sagði m.a.: Andstæðingar samkeppni í peningaútgáfu  hafa aldrei hrakið þær fullyrðingar að lögmál markaðarins  gildi jafnt um peninga og aðrar vörur. Ef það er rétt að  samkeppni á vörumarkaði tryggi best góð lífskjör, því  ættu önnur lögmál að gilda um peningamarkaðinn? Alveg eins  og hagur sparifjáreigenda og lántakenda er best tryggður  þegar samkeppni ríkir á milli banka og annarra  fjármálastofnana, er hag almennings best borgið þegar hann  getur valið á milli peninga. Eða heldur einhver því fram að  ríkisvaldið hefði hagað sér eins í stjórnun peningamála  ef Íslendingar hefðu verið frjálsir af því að velja á  milli krónunnar og annarra gjaldmiðla? Stjórnvöld geta  aðeins notað prentvélarnar og þar með skert verðgildi  peninga í skjóli einokunar.