Þegar veiðileyfaskatturinn er annars vegar hikar Morgunblaðið…
ekki við að blanda saman fréttaflutningi og skoðunum ritstjórnar blaðsins en ritstjórnin er eindregið fylgjandi því að skattar verði hækkaðir á landsmenn með skatti á aflaheimildir. Vitnin sem Morgunblaðið dregur fram sér til halds og trausts eru ekki alltaf jafnbeysin. Í Morgunblaðinu í dag er t.d. stór frétt á baksíðu undir yfirskriftinni: Tillaga á miðstjórnarfundi Alþýðubandalagsins: Kvóti verði leigður á markaði. Í inngangi fréttarinnar segir svo: Tillaga um að leigja aflaheimildir út á markaði, sem allir veiðileyfishafar hefðu aðgang að, hlaut verulegan stuðning á miðstjórnarfundi Alþýðubandalagsins sem hófst í Kópavogi á föstudagskvöld. Af þessu að dæma mátti ætla að Alþýðubandalagið hefði tekið nýja stefnu í þessu máli. En í lok fréttarinnar sagði svo: Tillagan var ekki borin undir atkvæði, þar sem miðstjórnarfundurinn var of fámennur og því ekki ályktunarhæfur.!!!
Í leiðara Morgunblaðsins er svo vikið að nýútkomnu riti…
þeirra Orra Haukssonar og Illuga Gunnarssonar um stjórn fiskveiða. Þar lýsir leiðarhöfundur undrun sinni á þeirri skoðun Orra og Illuga að núverandi fiskveiðistjórnun byggist á séreignarrétti á aflaheimildum. Hér er komið að kjarna málsins. Morgunblaðið styður sameignarbúskap á hafinu, hreinræktaðan sósíalisma. Á því leikur enginn vafi.