| Fréttablaðið 20. maí til 10. júlí        2004 – forsíðufréttir og leiðarar
 10. júlí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Þrír af hverjum fjórum andvígir nýju frumvarpi
 Andstaða við nýtt fjölmiðlafrumvarp er álíkamikil og hún var við hið        fyrra samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Um 66 prósent telja að        forsetinn eigi að synja nýjum lögum staðfestingar.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonNý skoðanakönnun Fréttablaðsins sýnir að ríkisstjórninni tekst ekki að        afla fjölmiðlafrumvarpi sínu stuðnings.
 Gjáin dregst ekki saman
 9. júlí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Útiloka ekki breytingar á frumvarpi
 Innan ríkisstjórnarinnar er það ekki útilokað að fjölmiðlafrumvarpið        muni taka breytingum í meðferð allsherjarnefndar. Fjármálaráðherra boðaði        það í ræðu á Alþingi. Stjórnarþingmenn telja að stjórnarandstaðan muni        hafna hvaða breytingartillögum sem er.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonTilefni fjölmiðlalaganna ekki í samræmi við herkostnað        ríkisstjórnarinnar.
 Ferð án fyrirheits
 8. júlí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Blóð fannst í jeppa hins handtekna
 Maður sem var handtekinn vegna mannshvarfs hefur verið úrskurðaður í        tveggja vikna varðhald. Maðurinn neitar að hafa komið nálægt hvarfi        konunnar. Blóð fannst heima hjá honum og í bíl hans.
 (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað        er á bls. 2.)
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonHvers vegna setur ríkisstjórnin lög sem afnema sig og endurvekja?
 Einkamál Davíðs
 7. júlí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Engin niðurstaða
 Engin ákvörðun um framtíð varnarliðsins á Íslandi var tekin á fundi        Davíðs Oddssonar og Bush Bandaríkjaforseta á fundi þeirra í Hvíta húsinu í        gær. Bush sagðist ætla að skoða málið með opnum huga. Íslendingar þurfa að        taka aukinn þátt í kostnaði við Keflavíkurflugvöll.
 (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað        er á bls. 2.)
 Sjónarmið: Guðmundur MagnússonVonir um tímamótafund Davíðs og Bush um varnarmálin brugðust:
 Vonbrigði í Washington
 6. júlí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Lætur kanna hvort nýtt frumvarp sé þinglegt
 Fyrsta fundi sumarþings lauk með háreysti í þingsölum í gær.        Stjórnarandstaðan deildi hart á ríkisstjórnina. Forseti Alþingis lætur        kanna hvort nýtt fjölmiðlafrumvarp sé þinglegt.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonRíkisstjórnin virðist ekki ráða við að marka skýrra og skynsamlega        stefnu samhliða yfirvofandi stólaskiptum.
 Formenn án framtíðar
 5. júlí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Nýtt frumvarp – engin þjóðaratkvæðagreiðsla
 Ríkisstjórnin hefur ákveðið að afturkalla fjölmiðlalögin sem forseti        Íslands hafði skotið til þjóðarinnar. Forsætisráðherra segir forsetann        ekki hafa neinar forsendur til að hafna nýju lögunum. Formaður        Samfylkingarinnar gagnrýnir málsmeðferðina.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonRíkisstjórnin gafst upp á að ná samkomulagi um fyrirkomulag        þjóðaratkvæðagreiðslu.
 Óvenjuleg lending – en ekki snjöll
 4. júlí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Enn ríkir óvissa
 Formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks reyna að ná samkomulagi        um þátttökuskilyrði í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ríkisstjórnarfundur í dag.        Þingmenn Framsóknar harðir á sínu.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonForystumenn Sjálfstæðisflokksins virðast hafa misst sjónar af        grundvallarleikreglum samfélagsins
 Þjóðin er þinginu æðri
 3. júlí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Framsókn vill 30%
 Formaður framsóknarflokksins hefur umboð frá þingflokknum um að semja        um að 30 prósent kosningabærra þurfi til að fella lög úr gildi. Þingmenn        Sjálfstæðisflokksins vilja þó ekki hvika frá 44 prósentum.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonEnn og aftur er kominn[!] upp sú staða í ríkisstjórninni að Davíð        Oddsson notar Halldór Ásgrímsson til að fá framsóknarmenn til að kyngja        því sem þeim býður við
 Kunnugleg staða í ríkisstjórninni
 2. júlí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Skilyrði verða sett
 Drög að frumvarpi um þjóðaratkvæðagreiðslu verða lögð fram á        ríkisstjórnarfundi í dag. Þar verða sett skilyrði um að ákveðið hlutfall        kosningabærra manna þurfi til að fella lög úr gildi. Framsóknarmenn        segjast sættast á kröfur Sjálfstæðisflokksins um skilyrði en vilja að þau        verði sem hóflegust.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonÞað er erfitt að sjá hvernig ríkisstjórnin ætlar að ná niðurstöðu í        fjölmiðlamálið sem hún er sátt við og hefur sóma af.
 Réttast af ráðherrunum að afnema lögin
 1. júlí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Lögregla sökuð um aðgerðarleysi
 Skuldarar sagðir hunsa boðun sýslumanns í fjárnám. Formaður        Lögmannafélags Íslands segir lögregluna ekki sinna skyldum sínum. Dæmi eru        um að kröfur hafi glatast vegna dráttar á framkvæmd fjárnáms.
 (Niðri á forsíðunni er einnig frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað        er á bls. 18)
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonÍslendingum gengur vel á alþjóðlegum vettvangi á sviðum sem fæstir        teldu að við ættum mikið fram að færa.
 Atorka einstaklinganna brýst fram á óvæntum sviðum
 30. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Enn óvissa í varnarmálum Íslendinga
 Halldór Ásgrímsson segir að staða varnarliðsins á Miðnesheiði hafi        ekki breyst á fundi aðildarríkja NATO. Ísland tekur sífellt aukinn þátt í        öryggisstarfi NATO en er ekki að hervæðast, segir ráðherra.
 (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað        er á bls. 6.)
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonÞað er augljóst af viðbrögðum ráðherra að ríkisstjórnin vill skerða        rétt kjósenda í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu eins og frekast er unnt.
 Vilji þjóðarinnar er æðri vilja þingsins
 29. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Stjórnarflokkar ekki sammála um skilyrði
 Starfshópur leggur til að sett verði skilyrði í lög um        þjóðaratkvæðagreiðslu sem kveða á um að 25-44% atkvæðisbærra manna þurfi        að synja lögum. Sjálfstæðisflokkur er hlynntur efri mörkunum en        Framsóknarflokkurinn þeim neðri. Frumvarp tilbúið í lok vikunnar.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonÞað er undarlegt að borgaralegir lýðræðissinnar í Sjálfstæðisflokknum        skuli efast um að Ólafur Ragnar Grímsson starfi í umboði íslensku        þjóðarinnar.
 Varðstöðumenn í uppreisnarham
 28. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Harðar deilur um túlkun úrslitanna
 Æðstu ráðamenn þjóðarinnar eru á öndverðum meiði um hvernig túlka beri        niðurstöðu forsetakosninga. Forsetinn segir úrslitin afgerandi á alla        mælikvarða en forsætisráðherra segir að úrslitin hljóti að vera forsetanum        áfall.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonUndarleg viðbrögð forystu Sjálfstæðisflokksins við úrslitum        forsetakosninga benda til að flokkurinn sé nú á valdi harðlínumanna með        minnihlutaskoðanir.
 Flokkur í álögum
 27. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Ólafur sigraði – fimmti hver skilaði auðu
 Ólafur Ragnar Grímsson endurkjörinn með um tveimur þriðju greiddra        atkvæða. Rúmur fimmtungur kjósenda skilaði auðu. Kjörsókn í        forsetakosningum hefur aldrei verið minni.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonEftir úrslit kosninganna munu margir segjast hafa unnið        kosningabaráttuna en það var aðeins einn sem vann kosningarnar.
 Sigur fyrir Ólaf Ragnar
 26. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Margt ungt fólk í fjárhagskröggum
 Árangurslausum fjárnámum hjá ungu fólki hefur fjölgað um 100% á milli        áranna 2003 og 2004. Um er að ræða fólk á aldrinum 21-30 ára sem á litlar        eignir til að mæta skuldunum. Þyngst vega bílalán og greiðslukortaskuldir.
 (Á forsíðunni er einnig minni frétt um fjölmiðlafrumvarpið.)
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonÞótt forsetakosningarnar í dag séu einfaldar á yfirborðinu kraumar æði        margt undir og deilt mun verða um túlkun úrslitanna.
 Hinn huldi frambjóðandi
 25. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Meirihluti andvígur aðild að ESB
 Rúmur helmingur þeirra sem afstöðu tóku í nýrri skoðanakönnun        Fréttablaðsins kvaðst andvígur umsókn um aðild að Evrópusambandinu.        Hlutfall óákveðinna hærra en andvígra og fylgjandi. Niðurstaðan        undirstrikar sterkt fylgi við umsókn, segir formaður Samfylkingarinnar.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonHerfræði forystu Sjálfstæðisflokksins hentar illa stórum og breiðum        flokki.
 Breiðfylking fellur fyrir minnihlutaviðhorfum
 24. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Þyngsti dómur í fjársvikamáli til þessa
 Fyrrum aðalféhirðir Landssímans var dæmdur í fjögurra og hálfs árs        fangelsi. Saksóknari segir dóminn vera einsdæmi. Fyrrum eigendur Skjás        eins voru dæmdir í tveggja ára fangelsi.
 Sjónarmið: Guðmundur MagnússonRitstjóri Morgunblaðsins segir átökin um fjölmiðlalögin barnaleik í        samanburði við átök sem fram undan séu.
 Nýtt stríð í undirbúningi?
 23. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Ólafur Ragnar með 70 prósenta fylgi
 Ólafur Ragnar fær 72% greiddra atkvæða í forsetakosningum ef tekið er        mið af afstöðu þeirra sem ætla að mæta á kjörstað, samkvæmt skoðanakönnun        Fréttablaðsins. Fimmtungur ætlar að skila auðu.
 Sjónarmið: Guðmundur MagnússonÁstæða er til að breyta reglum um skipun hæstaréttardómara til að taka        af öll tvímæli um að hæfni umsækjenda ráði úrslitum um valið.
 Val á dómurum í Hæstarétt
 22. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Upplausnarástand í aðdraganda valdaskipta
 Fjórir bandarískir hermenn féllu í launsátursárás í Írak í gær.        Skæruliðar hótuðu að hálshöggva suður-kóreskan gísl ef stjórnvöld í        Suður-Kóreu hættu ekki við fyrirhugaða liðsflutninga til Írak.        Upplausnarástand í öryggismálum varpar skugga á komandi valdaskipti.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonVið viljum stundum gleyma hversu mikilvæg og stórhuga tilraun        Evrópusambandið er.
 Stórhuga leið til friðar og hagsældar
 21. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Hrun loðnustofnsins kostar þjóðarbúið ellefu milljarða
 Örvænting hefur gripið um sig meðal útvegsmanna enda líður nú hver        dagurinn án þess að vart verði við loðnu á miðum landsins. Sé stofninn        hruninn munu áhrifin vara um langa hríð og kosta þjóðarbúið tugi milljarða        króna.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonÞað er vandfundið stríðsástandið sem forysta Sjálfstæðisflokksins og        leiðarahöfundur Morgunblaðsins boðuðu ef forseti Íslands synjaði lögum        staðfestingar.
 Kjarkur nauðsyn á Bessastöðum
 20. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Kona fannst látin í fjörunni í Fossvogi
 Vegfarandi fann lík konunnar og lét lögreglu vita. Ekki er talið að um        glæp hafi verið að ræða.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonFramtíðin er ekki fyrr orðin að nútíð en ný framtíð verður til.
 Óttinn býr til íhaldssemi
 19. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Tilbúinn að axla ábyrgð á kostnað vinsælda
 Ólafur Ragnar Grímsson segir ekki hægt að bera fjölmiðlalögin saman        við Kárahnjúka- eða öryrkjamál. Forsetinn megi ekki láta undan þrýstingi        einstakra forystumanna stjórnmálaflokka.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonTil að túlka úrslit forsetakosninganna eftir viku þarf að leita        samanburðar við kosningarnar 1988.
 Ólafur keppir við árangur Vigdísar
 18. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 KB banki kominn á sænska úrvalslistann
 KB banki kominn í hóp 40 stærstu á sænskum markaði. Mjög stór áfangi í        útrásarstefnu bankans. Eykur áhuga fjárfesta á bankanum, segir forstjóri        KB.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonÞrátt fyrir áform um veigamiklar skattalækkanir heyrist lítið af því        hvernig ríkisstjórnin vill minnka ríkisútgjöld.
 Ríkið þarf að spara til að lækka skatta
 17. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Sameining auðveldari en viljinn mun minni
 KB banki verður með yfirburðastöðu gagnvart stærstu viðskiptavinum        eftir sameiningu við danska bankann FIH. Stærð KB banka gerir sameiningu        hinna bankanna auðveldari, en áhuginn á því hefur minnkað í bili.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonÍslendingar geta búið við meiri auðlegð og velferð en nokkur önnur        þjóð.
 Horfum björtum augum til framtíðar
 16. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Hóta starfsfólki lífláti og líkamsmeiðingum
 Tveir menn sem segjast vera Hvítrússar og hafa beðið um pólitískt hæli        hér á landi hafa haft uppi alvarlegar hótanir í garð starfsmanna        Félagsþjónustunnar í Reykjanesbæ.
 (Á forsíðunni er einnig minni frétt um „málskotsrétt“.)
 Sjónarmið: Guðmundur MagnússonListamenn atvinnulífsins
 15. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Tveir íslenskir bankar bitust um danskan
 KB banki keypti í gær danska bankann FIH fyrir 84 milljarða króna.        Landsbankinn var einnig að skoða kaup á bankanum auk stærsta banka        Norðurlanda. KB banki liðlega tvöfaldast að stærð við kaupin.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonÞað er þraut sjálfstæðismanna að halda samstöðu hægrimanna í gegnum        hörð átök í samfélaginu.
 Hugmyndakreppa til hægri
 14. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Hafna fullyrðingum um forystukreppu
 Borgarfulltrúar Reykjavíkurlistans segja samstarfið innan hans gott.        Borgarstjóri hefur ekki ákveðið hvort hann tekur að sér pólitískt        forystuhlutverk. Sjálfstæðismenn segja ummæli Helga Hjörvar staðfesta að        R-listinn standi á veikum grunni.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonGagnrýni sjálfstæðismanna á Ólaf Ragnar Grímsson setur nokkra spennu í        komandi forsetakosningar.
 Átök í kringum átakalausar kosningar
 13. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Reykjavíkurlistinn að verða lítil klíka
 Einn af upphafsmönnum Reykjavíkurlistans segir að hann sé ekki lengur        sú breiða hreyfing sem hann var. Hann hefur áhyggjur af því að R-listinn        sé að verða lítil klíka í Ráðhúsinu.
 (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað        er á bls. 6.)
 Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson28 milljarða samningur ríkisins við mjólkurbændur viðheldur háu        matarverði.
 Fjárfest í fortíðinni
 12. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Skattalækkun gegn verðbólgu
 Hagvöxtur er á fleygiferð og Seðlabankastjóri segir bólgu í öllum        tölum. Varaformaður fjárlaganefndar vill bregðast við með lækkun        virðisaukaskatts.
 (Á forsíðunni er einnig minni frétt um þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem vísað        er á bls. 12.)
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonSkattalækkanir komnar til umræðu aftur – en á skrítnum forsendum.
 Lækkun skatta bætir samfélagið
 11. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Forsendur kjarasamninga í hættu
 Formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur telur forsendur kjarasamninga í        hættu þar sem verðbólga sé langt umfram þau mörk sem sett hafi verið.        Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 3,9 prósent síðastliðna tólf mánuði        og jafngildir hækkunin undanfarna þrjá mánuði níu prósenta verðbólgu á        ársgrundvelli.
 (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað        er á bls. 4.)
 Sjónarmið: Guðmundur MagnússonÁlitsgerð umboðsmanns Alþingis um fréttavef Ríkisútvarpsins er rökrétt        frá lagasjónarmiðið en óviðunandi fyrir fjölmiðil sem starfar í        samkeppnisumhverfi.
 Hraða þarf endurskoðun útvarpslaga
 10. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Sjómenn og útvegsmenn bera ábyrgðina
 Sjávarútvegsráðherra segir niðurstöðu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar        áfellisdóm yfir samningsferli sjómanna og útvegsmanna. Stofnunin átaldi        afskipti stjórnvalda af gerð kjarasamninga.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonMikill meirihluti vill greiða atkvæði gegn fjölmiðlalögunum.
 Skýr niðurstaða – en um hvað verður kosið?
 9. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Þátttökuskilyrði eru til skoðunar
 Nefnd sem undirbýr þjóðaratkvæðagreiðslu skoðar hvaða takmarkanir hægt        er að setja með tilliti til þátttöku í atkvæðagreiðslunni. Stuttum        samráðsfundi stjórnar og stjórnarandstöðu lauk í ósætti.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonFylgi við forsetann minnkar í könnunum en er enn traust.
 Forsetinn stendur af sér gagnrýni
 8. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Rannsókn beinist að stofnun Baugs
 Samkvæmt frumskýrslu skattrannsóknarstjóra hefur vanmat á verðgildi        fyrirtækja við stofnun valdið því að skattgreiðslur hafi verið lægri en        lög segja til um. Frestur er til 25. júní til þess að svara        frumskýrslunni.
 (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað        er á bls. 8.)
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonSjálfstæðisflokkurinn braggast en andstaðan enn mikil við        ríkisstjórnina.
 Erfiðir 100 dagar fyrir Halldór
 7. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Tveir af þremur eru sammála forsetanum
 Samkvæmt niðurstöðu nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins eru tveir af        hverjum þremur Íslendingum sammála ákvörðun forseta um að vísa        fjölmiðlalögunum til þjóðaratkvæðagreiðslu. „Styrkir stöðu Ólafs Ragnar,“        segir prófessor í stjórnmálafræði.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonMikill meirihluti þjóðarinnar vill að forsetinn hafi vald til að        skjóta einstökum málum í þjóðaratkvæðagreiðslu.
 Þjóðin vill að forsetinn hafi valdið
 6. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Ekkert samráð við stjórnarandstöðu
 Halldór Ásgrímsson taldi forsætisráðherra hafa haft samráð við formenn        allra stjórnmálaflokka um breytingu stjórnarskrár, ekki bara við sig.        Formenn stjórnarandstöðuflokkanna kannast ekki við það.
 (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað        er á bls. 4.)
 Mál manna: Sigurjón M. EgilssonStjórnarliðar undirbúa endurskoðun stjórnarskrárinnar. Þeir vilja koma        í veg fyrir að forseti geti framvegis tekið framfyrir hendur Alþingis með        því að synja lögum og senda þau til þjóðaratkvæðagreiðslu.
 Vilja breyta stjórnarskránni
 5. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Lögregla leitaði skotvopna
 Húsleitir voru gerðar á höfuðborgarsvæðinu og í Borgarfirði. Tveir        menn á fertugsaldri voru handteknir. Lagt var hald á skotfæri, sprengiefni        og kannabisplöntur. Við húsleitir í Reykjavík fundust kannabisefni og        hvítt efni sem talið er vera amfetamín eða kókaín.
 (Niðri á forsíðunni er einnig frétt um „málskotsrétt“ þar sem vísað er á        bls. 2.)
 Nokkur orð: Jón KaldalÞjóðaratkvæðagreiðsla um fjölmiðlalög forsætisráðherra mun ekki síður        snúast um áhuga og vilja þjóðarinnar til að eiga lokaorðið í umdeildum        málum. Má jafnvel færa rök fyrir því að tilefnið sjálft falli þar í        skuggann.
 Þjóðaratkvæði um þjóðaratkvæði
 4. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Forsætisráðherra heitir þjóðaratkvæðagreiðslu
 Forsetinn gangi erinda Norðurljósa. Þjóðaratkvæðagreiðsla verður um        fjölmiðlalögin við fyrsta tækifæri. Ríkisstjórnin mun ekki beita sér í        kosningabaráttu vegna fjölmiðlalaga. Þetta kom fram í máli        forsætisráðherra í Kastljósi í gær.
 Mál manna: Sigurjón M. EgilssonÍslendingar eru spyrjandi. Hvað varð til þess að móðir varð barni sínu        að bana og annað barn hennar komst undan við illan leik? Við höfum engin        svör en verðum öll að sýna aðgát.
 Harmleikur í Reykjavík
 3. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Til þjóðarinnar
 Forseti neitaði lögum staðfestingar í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins.        Fjölmiðlalögunum verður vísað til þjóðaratkvæðagreiðslu en kalla þarf        saman Alþingi til að setja lög um þjóðaratkvæðagreiðslu.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonForseti Íslands hafnaði fjölmiðlalögum Davíðs Oddssonar og        ríkisstjórnar hans. Alþingi fær framvegis aukið aðhald frá forseta.
 Gjá sem varð að brúa
 2. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Játning móðurinnar liggur ekki fyrir
 Konan sem grunuð er um að hafa banað dóttur sinni og stórslasað son        sinn aðfararnótt mánudags var yfirheyrð í gær. Játning liggur ekki fyrir.        Móðirin og drengurinn eru komin úr gjörgæslu.
 (Á forsíðunni er einnig minni frétt um fjölmiðlafrumvarpið.)
 Sjónarmið: Guðmundur MagnússonAlmenningur á rétt á að vita hvort ágreiningur sé innan        stjórnarflokkanna um skattalækkanir.
 Óviðunandi tafir á skattafrumvarpi
 1. júní 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Ellefu ára stúlka stungin til bana
 Móðir stúlkunnar grunuð um verknaðinn og úrskurðuð í gæsluvarðhald.        Fjórtán ára bróðir stúlkunnar komst særður undan. Móðirin talin hafa reynt        að svipta sig lífi eftir verknaðinn.
 Nokkur orð: Jón KaldalTíu ára valdaafmælisgjöf R-listans til borgarbúa er færsla og stækkun        Hringbrautar.
 Hringbrautin og fjölmiðlafrumvarpið
 29. maí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Óvenju hörðu átakaþingi lokið
 Stjórnarandstaðan segir að sprungur vegna skjálftans sem reið yfir        þingið í vetur séu ekki einungis milli stjórnar og stjórnarandstöðu heldur        teygi sig inn í stjórnarliðið. Ekki er áætlað að þingið hittist fyrr en á        haustdögum þegar Halldór Ásgrímsson tekur við forsætisráðuneytinu af Davíð        Oddssyni.
 Sjónarmið: Guðmundur MagnússonRétturinn til að ákveða þjóðaratkvæðagreiðslu um umdeild málefni verði        færður frá forsetanum til kjósenda.
 Í fyrsta og síðasta sinn
 28. maí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Frumvarp um Ríkisútvarp tilbúið fyrir næsta þing
 Stefnt er á að frumvarp um endurskipulagningu RÚV verði lagt fram        fyrir haustþing. Menntamálaráðherra vill leggja niður afnotagjöld og        gjörbreyta hlutverki útvarpsráðs, jafnvel afnema íhlutun stjórnmálaflokka        í ráðinu.
 (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað        er á bls. 2.)
 Mál manna: Sigurjón M. EgilssonStjórnmálaflokkar gefa ekki upp hverjir veita þeim styrki.        Stjórnmálamenn saka blaðamenn um að ganga erinda eigenda sinna. En hvað um        stjórnmálamenn?
 Stjórnmálamenn, eyðið óvissunni
 27. maí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 RÚV í rannsókn hjá Eftirlitsstofnun EFTA
 Íslenska ríkinu hefur borist kæra frá Eftirlitsstofnun EFTA, ESA,        vegna áskriftargjalda. Sendinefnd frá ESA fundaði með fjármálaráðuneyti í        gær. Kannað verður hvort innheimta megi áskriftargjöld og selja        auglýsingar. Hlutverk RÚV þarfnast skilgreiningar.
 Mál manna: Sigurjón M. EgilssonÁhugamenn og þeir sem hafa hagsmuna að gæta innan sjávarútvegsins hafa        haft mikil áhrif innan Alþingis
 Hagsmunagæsla eða stjórnmál
 26. maí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Ákvörðunar forseta Íslands beðið
 Varaforseti Alþingis og skrifstofustjóri settu nöfn sín á        fjölmiðlafrumvarpið í gær. Frumvarpið bíður staðfestingar forseta Íslands.        Undirskriftir tæplega 32 þúsund Íslendinga voru afhentar forseta í gær þar        sem skorað er á hann að synja staðfestingu.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonDavíð Oddsson segir mikil og illleysanleg vandamál fylgja synjun        forsetans á staðfestingu fjölmiðlalaganna.
 Ástæðulaus verkkvíði
 25. maí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Fjölmiðlalög samþykkt
 Framsóknarmennirnir Kristinn H. Gunnarsson og Jónína Bjartmarz studdu        ekki frumvarpið. Umræða um fjölmiðlafrumvarpið stóð í 84 klukkustundir        samfleytt á Alþingi. Lögin bíða nú staðfestingar forseta Íslands. Hart        deilt um fjölmiðlalög í eldhúsdagsumræðum.
 Sjónarmið: Guðmundur MagnússonSjálfstæðisflokkurinn 75 ára
 24. maí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Sjálfstæðismenn vildu hemja vöxt Baugs
 Sjálfstæðisflokkurinn ræddi í janúar hvernig bregðast ætti við vaxandi        styrk Baugs. Ekki væri lengur hægt að ráða við fyrirtækið. Þetta sagði        Pétur Blöndal. Hann segist ekki taka mark á skoðanakönnunum        Fréttablaðsins.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonÍ dag mun Alþingi sveigja af braut vestrænna lýðræðisríkja.
 Lög gegn frjálsri pressu
 23. maí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Ríkisstjórnin á rangri braut
 Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Framsóknarflokks segir flokk sinn        hafa villst af leið, áhrif einstakra þingmanna hafi minnkað til muna.        Kristinn segir ríkisstjórnina á rangri braut.
 Mál manna: Sigurjón M. EgilssonDavíð Oddsson hefur ekki farið leynt með andúð sína á fjölmiðlum        Norðurljósa.
 Spyr fólk í sjoppum
 22. maí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Stjórnin aldrei óvinsælli
 Nær 70% landsmanna eru andvíg ríkisstjórninni, samkvæmt skoðanakönnun        Fréttablaðsins, og hafa aldrei verið fleiri. Samfylkingin nýtur meira        fylgis en stjórnarflokkarnir til samans.
 (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað        er á bls. 2.)
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonFylgi við ríkisstjórnina og stjórnarflokkana mælist fádæma lítið.
 Sérlunduð stefna án stuðnings
 21. maí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Sjö af hverjum tíu vilja þjóðaratkvæðagreiðslu
 Um 71 prósent þjóðarinnar vill að forseti Íslands neiti að skrifa        undir fjölmiðlalögin. Tæplega 87 prósent telja forsetann hafa það vald.        Formaður Samfylkingarinnar segir fólk vera að herðast í andstöðunni.        Þingmaður Framsóknar segir opinbera umræðu hafa verið einhliða.
 Mín skoðun: Gunnar Smári EgilssonAndstaða þjóðarinnar við fjölmiðlafrumvarpið er mikil og staðföst.
 Þjóðin hafnar frumvarpinu
 20. maí 2004Forsíða – aðalfrétt:
 Margra ára martröð lokið
 Hæstiréttur sýknaði Pétur Þór Gunnarsson og Jónas Freydal Þorsteinsson        í stóra málverkafölsunarmálinu. Tveir dómarar skiluðu sératkvæði. Dómurinn        þykir áfellisdómur yfir rannsókn málsins, sem tók sjö ár og kostaði um 50        milljónir. Ég get loks byrjað að tjasla lífinu aftur saman, segir Pétur        Þór.
 (Niðri á forsíðunni er einnig frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað        er á bls. 12-13.)
 Sjónarmið: Guðmundur MagnússonMeiri fjölbreytni í atvinnulífinu en nokkru sinni fyrr
 Ástæðulausar áhyggjur
 |