Fréttablaðið 20. maí til 10. júlí 2004 – forsíðufréttir og leiðarar
10. júlí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Þrír af hverjum fjórum andvígir nýju frumvarpi Andstaða við nýtt fjölmiðlafrumvarp er álíkamikil og hún var við hið fyrra samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Um 66 prósent telja að forsetinn eigi að synja nýjum lögum staðfestingar.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Ný skoðanakönnun Fréttablaðsins sýnir að ríkisstjórninni tekst ekki að afla fjölmiðlafrumvarpi sínu stuðnings. Gjáin dregst ekki saman
9. júlí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Útiloka ekki breytingar á frumvarpi Innan ríkisstjórnarinnar er það ekki útilokað að fjölmiðlafrumvarpið muni taka breytingum í meðferð allsherjarnefndar. Fjármálaráðherra boðaði það í ræðu á Alþingi. Stjórnarþingmenn telja að stjórnarandstaðan muni hafna hvaða breytingartillögum sem er.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Tilefni fjölmiðlalaganna ekki í samræmi við herkostnað ríkisstjórnarinnar. Ferð án fyrirheits
8. júlí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Blóð fannst í jeppa hins handtekna Maður sem var handtekinn vegna mannshvarfs hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna varðhald. Maðurinn neitar að hafa komið nálægt hvarfi konunnar. Blóð fannst heima hjá honum og í bíl hans. (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað er á bls. 2.)
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Hvers vegna setur ríkisstjórnin lög sem afnema sig og endurvekja? Einkamál Davíðs
7. júlí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Engin niðurstaða Engin ákvörðun um framtíð varnarliðsins á Íslandi var tekin á fundi Davíðs Oddssonar og Bush Bandaríkjaforseta á fundi þeirra í Hvíta húsinu í gær. Bush sagðist ætla að skoða málið með opnum huga. Íslendingar þurfa að taka aukinn þátt í kostnaði við Keflavíkurflugvöll. (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað er á bls. 2.)
Sjónarmið: Guðmundur Magnússon Vonir um tímamótafund Davíðs og Bush um varnarmálin brugðust: Vonbrigði í Washington
6. júlí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Lætur kanna hvort nýtt frumvarp sé þinglegt Fyrsta fundi sumarþings lauk með háreysti í þingsölum í gær. Stjórnarandstaðan deildi hart á ríkisstjórnina. Forseti Alþingis lætur kanna hvort nýtt fjölmiðlafrumvarp sé þinglegt.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Ríkisstjórnin virðist ekki ráða við að marka skýrra og skynsamlega stefnu samhliða yfirvofandi stólaskiptum. Formenn án framtíðar
5. júlí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Nýtt frumvarp – engin þjóðaratkvæðagreiðsla Ríkisstjórnin hefur ákveðið að afturkalla fjölmiðlalögin sem forseti Íslands hafði skotið til þjóðarinnar. Forsætisráðherra segir forsetann ekki hafa neinar forsendur til að hafna nýju lögunum. Formaður Samfylkingarinnar gagnrýnir málsmeðferðina.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Ríkisstjórnin gafst upp á að ná samkomulagi um fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu. Óvenjuleg lending – en ekki snjöll
4. júlí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Enn ríkir óvissa Formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks reyna að ná samkomulagi um þátttökuskilyrði í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ríkisstjórnarfundur í dag. Þingmenn Framsóknar harðir á sínu.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Forystumenn Sjálfstæðisflokksins virðast hafa misst sjónar af grundvallarleikreglum samfélagsins Þjóðin er þinginu æðri
3. júlí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Framsókn vill 30% Formaður framsóknarflokksins hefur umboð frá þingflokknum um að semja um að 30 prósent kosningabærra þurfi til að fella lög úr gildi. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja þó ekki hvika frá 44 prósentum.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Enn og aftur er kominn[!] upp sú staða í ríkisstjórninni að Davíð Oddsson notar Halldór Ásgrímsson til að fá framsóknarmenn til að kyngja því sem þeim býður við Kunnugleg staða í ríkisstjórninni
2. júlí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Skilyrði verða sett Drög að frumvarpi um þjóðaratkvæðagreiðslu verða lögð fram á ríkisstjórnarfundi í dag. Þar verða sett skilyrði um að ákveðið hlutfall kosningabærra manna þurfi til að fella lög úr gildi. Framsóknarmenn segjast sættast á kröfur Sjálfstæðisflokksins um skilyrði en vilja að þau verði sem hóflegust.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Það er erfitt að sjá hvernig ríkisstjórnin ætlar að ná niðurstöðu í fjölmiðlamálið sem hún er sátt við og hefur sóma af. Réttast af ráðherrunum að afnema lögin
1. júlí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Lögregla sökuð um aðgerðarleysi Skuldarar sagðir hunsa boðun sýslumanns í fjárnám. Formaður Lögmannafélags Íslands segir lögregluna ekki sinna skyldum sínum. Dæmi eru um að kröfur hafi glatast vegna dráttar á framkvæmd fjárnáms. (Niðri á forsíðunni er einnig frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað er á bls. 18)
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Íslendingum gengur vel á alþjóðlegum vettvangi á sviðum sem fæstir teldu að við ættum mikið fram að færa. Atorka einstaklinganna brýst fram á óvæntum sviðum
30. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Enn óvissa í varnarmálum Íslendinga Halldór Ásgrímsson segir að staða varnarliðsins á Miðnesheiði hafi ekki breyst á fundi aðildarríkja NATO. Ísland tekur sífellt aukinn þátt í öryggisstarfi NATO en er ekki að hervæðast, segir ráðherra. (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað er á bls. 6.)
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Það er augljóst af viðbrögðum ráðherra að ríkisstjórnin vill skerða rétt kjósenda í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu eins og frekast er unnt. Vilji þjóðarinnar er æðri vilja þingsins
29. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Stjórnarflokkar ekki sammála um skilyrði Starfshópur leggur til að sett verði skilyrði í lög um þjóðaratkvæðagreiðslu sem kveða á um að 25-44% atkvæðisbærra manna þurfi að synja lögum. Sjálfstæðisflokkur er hlynntur efri mörkunum en Framsóknarflokkurinn þeim neðri. Frumvarp tilbúið í lok vikunnar.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Það er undarlegt að borgaralegir lýðræðissinnar í Sjálfstæðisflokknum skuli efast um að Ólafur Ragnar Grímsson starfi í umboði íslensku þjóðarinnar. Varðstöðumenn í uppreisnarham
28. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Harðar deilur um túlkun úrslitanna Æðstu ráðamenn þjóðarinnar eru á öndverðum meiði um hvernig túlka beri niðurstöðu forsetakosninga. Forsetinn segir úrslitin afgerandi á alla mælikvarða en forsætisráðherra segir að úrslitin hljóti að vera forsetanum áfall.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Undarleg viðbrögð forystu Sjálfstæðisflokksins við úrslitum forsetakosninga benda til að flokkurinn sé nú á valdi harðlínumanna með minnihlutaskoðanir. Flokkur í álögum
27. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Ólafur sigraði – fimmti hver skilaði auðu Ólafur Ragnar Grímsson endurkjörinn með um tveimur þriðju greiddra atkvæða. Rúmur fimmtungur kjósenda skilaði auðu. Kjörsókn í forsetakosningum hefur aldrei verið minni.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Eftir úrslit kosninganna munu margir segjast hafa unnið kosningabaráttuna en það var aðeins einn sem vann kosningarnar. Sigur fyrir Ólaf Ragnar
26. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Margt ungt fólk í fjárhagskröggum Árangurslausum fjárnámum hjá ungu fólki hefur fjölgað um 100% á milli áranna 2003 og 2004. Um er að ræða fólk á aldrinum 21-30 ára sem á litlar eignir til að mæta skuldunum. Þyngst vega bílalán og greiðslukortaskuldir. (Á forsíðunni er einnig minni frétt um fjölmiðlafrumvarpið.)
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Þótt forsetakosningarnar í dag séu einfaldar á yfirborðinu kraumar æði margt undir og deilt mun verða um túlkun úrslitanna. Hinn huldi frambjóðandi
25. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Meirihluti andvígur aðild að ESB Rúmur helmingur þeirra sem afstöðu tóku í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins kvaðst andvígur umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Hlutfall óákveðinna hærra en andvígra og fylgjandi. Niðurstaðan undirstrikar sterkt fylgi við umsókn, segir formaður Samfylkingarinnar.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Herfræði forystu Sjálfstæðisflokksins hentar illa stórum og breiðum flokki. Breiðfylking fellur fyrir minnihlutaviðhorfum
24. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Þyngsti dómur í fjársvikamáli til þessa Fyrrum aðalféhirðir Landssímans var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi. Saksóknari segir dóminn vera einsdæmi. Fyrrum eigendur Skjás eins voru dæmdir í tveggja ára fangelsi.
Sjónarmið: Guðmundur Magnússon Ritstjóri Morgunblaðsins segir átökin um fjölmiðlalögin barnaleik í samanburði við átök sem fram undan séu. Nýtt stríð í undirbúningi?
23. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Ólafur Ragnar með 70 prósenta fylgi Ólafur Ragnar fær 72% greiddra atkvæða í forsetakosningum ef tekið er mið af afstöðu þeirra sem ætla að mæta á kjörstað, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins. Fimmtungur ætlar að skila auðu.
Sjónarmið: Guðmundur Magnússon Ástæða er til að breyta reglum um skipun hæstaréttardómara til að taka af öll tvímæli um að hæfni umsækjenda ráði úrslitum um valið. Val á dómurum í Hæstarétt
22. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Upplausnarástand í aðdraganda valdaskipta Fjórir bandarískir hermenn féllu í launsátursárás í Írak í gær. Skæruliðar hótuðu að hálshöggva suður-kóreskan gísl ef stjórnvöld í Suður-Kóreu hættu ekki við fyrirhugaða liðsflutninga til Írak. Upplausnarástand í öryggismálum varpar skugga á komandi valdaskipti.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Við viljum stundum gleyma hversu mikilvæg og stórhuga tilraun Evrópusambandið er. Stórhuga leið til friðar og hagsældar
21. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Hrun loðnustofnsins kostar þjóðarbúið ellefu milljarða Örvænting hefur gripið um sig meðal útvegsmanna enda líður nú hver dagurinn án þess að vart verði við loðnu á miðum landsins. Sé stofninn hruninn munu áhrifin vara um langa hríð og kosta þjóðarbúið tugi milljarða króna.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Það er vandfundið stríðsástandið sem forysta Sjálfstæðisflokksins og leiðarahöfundur Morgunblaðsins boðuðu ef forseti Íslands synjaði lögum staðfestingar. Kjarkur nauðsyn á Bessastöðum
20. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Kona fannst látin í fjörunni í Fossvogi Vegfarandi fann lík konunnar og lét lögreglu vita. Ekki er talið að um glæp hafi verið að ræða.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Framtíðin er ekki fyrr orðin að nútíð en ný framtíð verður til. Óttinn býr til íhaldssemi
19. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Tilbúinn að axla ábyrgð á kostnað vinsælda Ólafur Ragnar Grímsson segir ekki hægt að bera fjölmiðlalögin saman við Kárahnjúka- eða öryrkjamál. Forsetinn megi ekki láta undan þrýstingi einstakra forystumanna stjórnmálaflokka.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Til að túlka úrslit forsetakosninganna eftir viku þarf að leita samanburðar við kosningarnar 1988. Ólafur keppir við árangur Vigdísar
18. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: KB banki kominn á sænska úrvalslistann KB banki kominn í hóp 40 stærstu á sænskum markaði. Mjög stór áfangi í útrásarstefnu bankans. Eykur áhuga fjárfesta á bankanum, segir forstjóri KB.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Þrátt fyrir áform um veigamiklar skattalækkanir heyrist lítið af því hvernig ríkisstjórnin vill minnka ríkisútgjöld. Ríkið þarf að spara til að lækka skatta
17. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Sameining auðveldari en viljinn mun minni KB banki verður með yfirburðastöðu gagnvart stærstu viðskiptavinum eftir sameiningu við danska bankann FIH. Stærð KB banka gerir sameiningu hinna bankanna auðveldari, en áhuginn á því hefur minnkað í bili.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Íslendingar geta búið við meiri auðlegð og velferð en nokkur önnur þjóð. Horfum björtum augum til framtíðar
16. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Hóta starfsfólki lífláti og líkamsmeiðingum Tveir menn sem segjast vera Hvítrússar og hafa beðið um pólitískt hæli hér á landi hafa haft uppi alvarlegar hótanir í garð starfsmanna Félagsþjónustunnar í Reykjanesbæ. (Á forsíðunni er einnig minni frétt um „málskotsrétt“.)
Sjónarmið: Guðmundur Magnússon Listamenn atvinnulífsins
15. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Tveir íslenskir bankar bitust um danskan KB banki keypti í gær danska bankann FIH fyrir 84 milljarða króna. Landsbankinn var einnig að skoða kaup á bankanum auk stærsta banka Norðurlanda. KB banki liðlega tvöfaldast að stærð við kaupin.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Það er þraut sjálfstæðismanna að halda samstöðu hægrimanna í gegnum hörð átök í samfélaginu. Hugmyndakreppa til hægri
14. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Hafna fullyrðingum um forystukreppu Borgarfulltrúar Reykjavíkurlistans segja samstarfið innan hans gott. Borgarstjóri hefur ekki ákveðið hvort hann tekur að sér pólitískt forystuhlutverk. Sjálfstæðismenn segja ummæli Helga Hjörvar staðfesta að R-listinn standi á veikum grunni.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Gagnrýni sjálfstæðismanna á Ólaf Ragnar Grímsson setur nokkra spennu í komandi forsetakosningar. Átök í kringum átakalausar kosningar
13. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Reykjavíkurlistinn að verða lítil klíka Einn af upphafsmönnum Reykjavíkurlistans segir að hann sé ekki lengur sú breiða hreyfing sem hann var. Hann hefur áhyggjur af því að R-listinn sé að verða lítil klíka í Ráðhúsinu. (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað er á bls. 6.)
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson 28 milljarða samningur ríkisins við mjólkurbændur viðheldur háu matarverði. Fjárfest í fortíðinni
12. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Skattalækkun gegn verðbólgu Hagvöxtur er á fleygiferð og Seðlabankastjóri segir bólgu í öllum tölum. Varaformaður fjárlaganefndar vill bregðast við með lækkun virðisaukaskatts. (Á forsíðunni er einnig minni frétt um þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem vísað er á bls. 12.)
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Skattalækkanir komnar til umræðu aftur – en á skrítnum forsendum. Lækkun skatta bætir samfélagið
11. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Forsendur kjarasamninga í hættu Formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur telur forsendur kjarasamninga í hættu þar sem verðbólga sé langt umfram þau mörk sem sett hafi verið. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 3,9 prósent síðastliðna tólf mánuði og jafngildir hækkunin undanfarna þrjá mánuði níu prósenta verðbólgu á ársgrundvelli. (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað er á bls. 4.)
Sjónarmið: Guðmundur Magnússon Álitsgerð umboðsmanns Alþingis um fréttavef Ríkisútvarpsins er rökrétt frá lagasjónarmiðið en óviðunandi fyrir fjölmiðil sem starfar í samkeppnisumhverfi. Hraða þarf endurskoðun útvarpslaga
10. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Sjómenn og útvegsmenn bera ábyrgðina Sjávarútvegsráðherra segir niðurstöðu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar áfellisdóm yfir samningsferli sjómanna og útvegsmanna. Stofnunin átaldi afskipti stjórnvalda af gerð kjarasamninga.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Mikill meirihluti vill greiða atkvæði gegn fjölmiðlalögunum. Skýr niðurstaða – en um hvað verður kosið?
9. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Þátttökuskilyrði eru til skoðunar Nefnd sem undirbýr þjóðaratkvæðagreiðslu skoðar hvaða takmarkanir hægt er að setja með tilliti til þátttöku í atkvæðagreiðslunni. Stuttum samráðsfundi stjórnar og stjórnarandstöðu lauk í ósætti.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Fylgi við forsetann minnkar í könnunum en er enn traust. Forsetinn stendur af sér gagnrýni
8. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Rannsókn beinist að stofnun Baugs Samkvæmt frumskýrslu skattrannsóknarstjóra hefur vanmat á verðgildi fyrirtækja við stofnun valdið því að skattgreiðslur hafi verið lægri en lög segja til um. Frestur er til 25. júní til þess að svara frumskýrslunni. (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað er á bls. 8.)
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Sjálfstæðisflokkurinn braggast en andstaðan enn mikil við ríkisstjórnina. Erfiðir 100 dagar fyrir Halldór
7. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Tveir af þremur eru sammála forsetanum Samkvæmt niðurstöðu nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins eru tveir af hverjum þremur Íslendingum sammála ákvörðun forseta um að vísa fjölmiðlalögunum til þjóðaratkvæðagreiðslu. „Styrkir stöðu Ólafs Ragnar,“ segir prófessor í stjórnmálafræði.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Mikill meirihluti þjóðarinnar vill að forsetinn hafi vald til að skjóta einstökum málum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðin vill að forsetinn hafi valdið
6. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Ekkert samráð við stjórnarandstöðu Halldór Ásgrímsson taldi forsætisráðherra hafa haft samráð við formenn allra stjórnmálaflokka um breytingu stjórnarskrár, ekki bara við sig. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna kannast ekki við það. (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað er á bls. 4.)
Mál manna: Sigurjón M. Egilsson Stjórnarliðar undirbúa endurskoðun stjórnarskrárinnar. Þeir vilja koma í veg fyrir að forseti geti framvegis tekið framfyrir hendur Alþingis með því að synja lögum og senda þau til þjóðaratkvæðagreiðslu. Vilja breyta stjórnarskránni
5. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Lögregla leitaði skotvopna Húsleitir voru gerðar á höfuðborgarsvæðinu og í Borgarfirði. Tveir menn á fertugsaldri voru handteknir. Lagt var hald á skotfæri, sprengiefni og kannabisplöntur. Við húsleitir í Reykjavík fundust kannabisefni og hvítt efni sem talið er vera amfetamín eða kókaín. (Niðri á forsíðunni er einnig frétt um „málskotsrétt“ þar sem vísað er á bls. 2.)
Nokkur orð: Jón Kaldal Þjóðaratkvæðagreiðsla um fjölmiðlalög forsætisráðherra mun ekki síður snúast um áhuga og vilja þjóðarinnar til að eiga lokaorðið í umdeildum málum. Má jafnvel færa rök fyrir því að tilefnið sjálft falli þar í skuggann. Þjóðaratkvæði um þjóðaratkvæði
4. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Forsætisráðherra heitir þjóðaratkvæðagreiðslu Forsetinn gangi erinda Norðurljósa. Þjóðaratkvæðagreiðsla verður um fjölmiðlalögin við fyrsta tækifæri. Ríkisstjórnin mun ekki beita sér í kosningabaráttu vegna fjölmiðlalaga. Þetta kom fram í máli forsætisráðherra í Kastljósi í gær.
Mál manna: Sigurjón M. Egilsson Íslendingar eru spyrjandi. Hvað varð til þess að móðir varð barni sínu að bana og annað barn hennar komst undan við illan leik? Við höfum engin svör en verðum öll að sýna aðgát. Harmleikur í Reykjavík
3. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Til þjóðarinnar Forseti neitaði lögum staðfestingar í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins. Fjölmiðlalögunum verður vísað til þjóðaratkvæðagreiðslu en kalla þarf saman Alþingi til að setja lög um þjóðaratkvæðagreiðslu.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Forseti Íslands hafnaði fjölmiðlalögum Davíðs Oddssonar og ríkisstjórnar hans. Alþingi fær framvegis aukið aðhald frá forseta. Gjá sem varð að brúa
2. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Játning móðurinnar liggur ekki fyrir Konan sem grunuð er um að hafa banað dóttur sinni og stórslasað son sinn aðfararnótt mánudags var yfirheyrð í gær. Játning liggur ekki fyrir. Móðirin og drengurinn eru komin úr gjörgæslu. (Á forsíðunni er einnig minni frétt um fjölmiðlafrumvarpið.)
Sjónarmið: Guðmundur Magnússon Almenningur á rétt á að vita hvort ágreiningur sé innan stjórnarflokkanna um skattalækkanir. Óviðunandi tafir á skattafrumvarpi
1. júní 2004 Forsíða – aðalfrétt: Ellefu ára stúlka stungin til bana Móðir stúlkunnar grunuð um verknaðinn og úrskurðuð í gæsluvarðhald. Fjórtán ára bróðir stúlkunnar komst særður undan. Móðirin talin hafa reynt að svipta sig lífi eftir verknaðinn.
Nokkur orð: Jón Kaldal Tíu ára valdaafmælisgjöf R-listans til borgarbúa er færsla og stækkun Hringbrautar. Hringbrautin og fjölmiðlafrumvarpið
29. maí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Óvenju hörðu átakaþingi lokið Stjórnarandstaðan segir að sprungur vegna skjálftans sem reið yfir þingið í vetur séu ekki einungis milli stjórnar og stjórnarandstöðu heldur teygi sig inn í stjórnarliðið. Ekki er áætlað að þingið hittist fyrr en á haustdögum þegar Halldór Ásgrímsson tekur við forsætisráðuneytinu af Davíð Oddssyni.
Sjónarmið: Guðmundur Magnússon Rétturinn til að ákveða þjóðaratkvæðagreiðslu um umdeild málefni verði færður frá forsetanum til kjósenda. Í fyrsta og síðasta sinn
28. maí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Frumvarp um Ríkisútvarp tilbúið fyrir næsta þing Stefnt er á að frumvarp um endurskipulagningu RÚV verði lagt fram fyrir haustþing. Menntamálaráðherra vill leggja niður afnotagjöld og gjörbreyta hlutverki útvarpsráðs, jafnvel afnema íhlutun stjórnmálaflokka í ráðinu. (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað er á bls. 2.)
Mál manna: Sigurjón M. Egilsson Stjórnmálaflokkar gefa ekki upp hverjir veita þeim styrki. Stjórnmálamenn saka blaðamenn um að ganga erinda eigenda sinna. En hvað um stjórnmálamenn? Stjórnmálamenn, eyðið óvissunni
27. maí 2004 Forsíða – aðalfrétt: RÚV í rannsókn hjá Eftirlitsstofnun EFTA Íslenska ríkinu hefur borist kæra frá Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, vegna áskriftargjalda. Sendinefnd frá ESA fundaði með fjármálaráðuneyti í gær. Kannað verður hvort innheimta megi áskriftargjöld og selja auglýsingar. Hlutverk RÚV þarfnast skilgreiningar.
Mál manna: Sigurjón M. Egilsson Áhugamenn og þeir sem hafa hagsmuna að gæta innan sjávarútvegsins hafa haft mikil áhrif innan Alþingis Hagsmunagæsla eða stjórnmál
26. maí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Ákvörðunar forseta Íslands beðið Varaforseti Alþingis og skrifstofustjóri settu nöfn sín á fjölmiðlafrumvarpið í gær. Frumvarpið bíður staðfestingar forseta Íslands. Undirskriftir tæplega 32 þúsund Íslendinga voru afhentar forseta í gær þar sem skorað er á hann að synja staðfestingu.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Davíð Oddsson segir mikil og illleysanleg vandamál fylgja synjun forsetans á staðfestingu fjölmiðlalaganna. Ástæðulaus verkkvíði
25. maí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Fjölmiðlalög samþykkt Framsóknarmennirnir Kristinn H. Gunnarsson og Jónína Bjartmarz studdu ekki frumvarpið. Umræða um fjölmiðlafrumvarpið stóð í 84 klukkustundir samfleytt á Alþingi. Lögin bíða nú staðfestingar forseta Íslands. Hart deilt um fjölmiðlalög í eldhúsdagsumræðum.
Sjónarmið: Guðmundur Magnússon Sjálfstæðisflokkurinn 75 ára
24. maí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Sjálfstæðismenn vildu hemja vöxt Baugs Sjálfstæðisflokkurinn ræddi í janúar hvernig bregðast ætti við vaxandi styrk Baugs. Ekki væri lengur hægt að ráða við fyrirtækið. Þetta sagði Pétur Blöndal. Hann segist ekki taka mark á skoðanakönnunum Fréttablaðsins.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Í dag mun Alþingi sveigja af braut vestrænna lýðræðisríkja. Lög gegn frjálsri pressu
23. maí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Ríkisstjórnin á rangri braut Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Framsóknarflokks segir flokk sinn hafa villst af leið, áhrif einstakra þingmanna hafi minnkað til muna. Kristinn segir ríkisstjórnina á rangri braut.
Mál manna: Sigurjón M. Egilsson Davíð Oddsson hefur ekki farið leynt með andúð sína á fjölmiðlum Norðurljósa. Spyr fólk í sjoppum
22. maí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Stjórnin aldrei óvinsælli Nær 70% landsmanna eru andvíg ríkisstjórninni, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins, og hafa aldrei verið fleiri. Samfylkingin nýtur meira fylgis en stjórnarflokkarnir til samans. (Á forsíðunni er einnig lítil frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað er á bls. 2.)
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Fylgi við ríkisstjórnina og stjórnarflokkana mælist fádæma lítið. Sérlunduð stefna án stuðnings
21. maí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Sjö af hverjum tíu vilja þjóðaratkvæðagreiðslu Um 71 prósent þjóðarinnar vill að forseti Íslands neiti að skrifa undir fjölmiðlalögin. Tæplega 87 prósent telja forsetann hafa það vald. Formaður Samfylkingarinnar segir fólk vera að herðast í andstöðunni. Þingmaður Framsóknar segir opinbera umræðu hafa verið einhliða.
Mín skoðun: Gunnar Smári Egilsson Andstaða þjóðarinnar við fjölmiðlafrumvarpið er mikil og staðföst. Þjóðin hafnar frumvarpinu
20. maí 2004 Forsíða – aðalfrétt: Margra ára martröð lokið Hæstiréttur sýknaði Pétur Þór Gunnarsson og Jónas Freydal Þorsteinsson í stóra málverkafölsunarmálinu. Tveir dómarar skiluðu sératkvæði. Dómurinn þykir áfellisdómur yfir rannsókn málsins, sem tók sjö ár og kostaði um 50 milljónir. Ég get loks byrjað að tjasla lífinu aftur saman, segir Pétur Þór. (Niðri á forsíðunni er einnig frétt um fjölmiðlafrumvarpið þar sem vísað er á bls. 12-13.)
Sjónarmið: Guðmundur Magnússon Meiri fjölbreytni í atvinnulífinu en nokkru sinni fyrr Ástæðulausar áhyggjur
|