Grétar Þorsteinsson, forseti  ASÍ, sagði í sjónvarpsfréttum… 
í gærkvöldi að ASÍ og  Neytendasamtökin myndu á næstunni hafa strangt eftirlit með  því að verðlag hækkaði  ekki“. Hvað ætli  Alþýðusamband Vestfjarða, sem reynir nú með öllum ráðum  að hækka verðlag á vinnuafli, segi við  þessu? Einnig má benda forsetanum á að skattar,  innflutningstakmarkanir og önnur ríkisafskipti  eru ein helsta ástæða þess að verðlag hér er hærra en í  nálægum löndum.
Útvarp allra landsmanna,  Ríkisútvarpið… 
ber það nafn með réttu, enda eru  allir eigendur viðtækja fyrir útvarp og sjónvarp neyddir  til þess að kaupa þjónustu þess. Þessi útvarpsstöð hefur  það fyrir sið þann 1. maí ár hvert að leggja dagskrá  sína undir misjafnlega dulbúinn sósíalískan áróður. Lesin  eru ljóð vinstri sinnaðra skálda, spilaðir gamlir  baráttusöngvar kommúnista og útvarpað í heilu lagi  fundarhöldum verkalýðsfélaganna í miðbæ Reykjavíkur. Þar  nota svo ræðumenn tækifærið út í ystu æsar til að prédika  pólitískar skoðanir sínar. Mörgum þykir undarlegt  að tilteknum pólitískum skoðunum skuli vera gert svo hátt  undir höfði í útvarpsstöð, sem landsmenn allir verða að  kosta. Væri hins vegar um að ræða stöð í eigu einhverra  einstaklinga eða félagasamtaka myndi hins vegar auðvitað  gegna allt öðru máli. En meðan Ríkisútvarpið er rekið  með þeim hætti sem tíðkast í dag er eðlilegt að efnistök  og dagskrárgerð þar séu í eilítið meira jafnvægi heldur  en til þessa.
Það er hins vegar trúlega  ekki ástæða til að ætla… 
að sósíalistaáróðurinn á 1.  maí hafi mikil áhrif. Byltingarkvæðin og baráttusöngvarnir  hafa í dag heldur holan hljóm, enda eru þetta sömu ljóð og  söngvar og sungnir voru til dýrðar einhverju allra versta  harðstjórnarkerfi síðustu alda. Skáldin, sem vitnað er til,  ortu lofgerðarljóð um Sovétríkin og  Stalín. Söngvarnir, sem eru sungnir, eru þeir sömu og sungnir  voru í Moskvu, Phnom Penh og Pyong Yang. Og meira að segja  ræður verkalýðsforstjóranna eru þær sömu og forverar  þeirra héldu hér á landi fyrir fimmtíu árum!  Ríkisútvarpið notar því 1. maí til að útvarpa röddum úr  fortíðinni í fleiri en einum skilningi.
Tony Blair, leiðtogi  Verkamannaflokksins, verður næsti… 
forsætisráðherra Bretlands. Það  eru 23 ár frá síðasta kosningasigri Verkamannaflokksins og  ekki furða þótt breskir kjósendur gefi flokknum færi á ný.  Ekki síst þegar leiðtogi hans kemur fram sem venjulegur  íhaldsmaður. Hvað býr svo að baki í miklum  þingmeirihluta flokksins á eftir að koma í ljós. Fátt  bendir til að Bretar verði varir við miklar breytingar þótt  ný stjórn sé tekinn við völdum. Það er því ekki að  furða þótt ritstjórar blaða, allt frá Newsweek að  Alþýðublaðinu, telji hinn raunverulega sigurvegara  kosninganna heita Margréti Thatcher.  Frjálshyggjuhluti þeirra breytinga sem járnfrúin stóð fyrir  á veldaferli sínum er ekki aðeins traustur í sessi í  Bretlandi heldur hefur einkavæðingin a la Thatcher farið  sigurför um heiminn.