Vefþjóðviljinn 177. tbl. 20. árg.
Fólk hefur þetta öðruvísi í Bretlandi en á Íslandi.
Forsætisráðherra Bretlands tapar þjóðaratkvæðagreiðslu. Tapar mjög naumlega en tapar samt.
Hann tilkynnti afsögn sína daginn eftir.
Katrín Jakobsdóttir formaður VG segir að afsögnin komi ekki á óvart.
Ráðherrar í ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms töpuðu tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum á Íslandi.
Enginn þeirra sagði af sér. Katrínu kemur mjög á óvart að Katrín hafi ekki sagt af sér.
Enginn þeirra sem barðist opinberlega fyrir Iceave hefur beðist afsökunar á því. Enginn biðst afsökunar á því að hafa reynt að fá samlanda sína til að samþykkja þá glötuðu samninga.