Vefþjóðviljinn 326. tbl. 19. árg.
Allt frá því Eyjafjallajökull hóf mestu auglýsingaherferð í sögu ferðaþjónustunnar í mars 2010 hefur verið ljóst að eigendur landsvæða á Íslandi, sem ferðamönnum þykja áhugaverð, gætu aflað talsverðra tekna með því að innheimta einhvers konar aðgangseyri.
Slíkur aðgangseyrir er í raun engin nýlunda á Íslandi. Eigendur veiðiréttar í ám og vötnum hafa innheimt aðgangseyri af veiðimönnum með góðum árangri í áratugi. Bláa lónið og Jarðböðin innheimta sömuleiðis aðgangseyri og nettæknin hefur jafnvel gert Bláa lóninu mögulegt að láta gesti bóka heimsóknartíma fyrirfram og þannig náð að jafna álagið og gera heimsókn hvers og eins ánægjulegri.
Því miður var talsverðum tíma eytt í hugmyndir um miðstýrða ríkislausn með opinberum úthlutunarsjóði sem nefnd var náttúrupassi, áður hafði einnig verið lagt á gistináttaskattur sem rann í ríkissjóðs.
Eins og hér hefur áður verið sagt er aðeins með því að greitt sé fyrir þjónustu á hverjum stað sé mögulegt að tryggja að aðeins þeir sem njóti greiði og að einnig að hægt sé að stýra álagi með mismunandi gjöldum og innheimtuaðferðum, að tekjur verði eftir á þeim stöðum sem afla þeirra og menn losni með enn einn opinbera úthlutunarsjóðinn þar sem fulltrúar flokka og kjördæma togast á um peningana.
Nú virðast nokkrir landeigendur og ferðaþjónustuaðilar á fjölsóttum ferðamannastöðum á suðurströndinni hafa ákveðið að ekki sé eftir neinu að bíða í þessum efnum. Í tilkynningu sem þeir sendu frá sér segir:
Nokkrir landeigendur og ferðaþjónustuaðilar á fjölsóttum ferðamannastöðum á suðurströndinni boðuðu til fundar með sveitarstjórum til að ræða aðbúnað og þjónustu við ferðamenn á fjölsóttum ferðamannastöðum á svæðinu. Brýnt er að fara í mikla uppbyggingu á svæðinu öllu til að hægt sé á sómasamlegan hátt að taka á móti öllum þeim ferðamönnum sem sækja svæðin heim og það verður ekki gert án verulegs kostnaðar.
Um fjarmögnun slíkra verkefna hefur verið deilt á undanförnum árum og þar rætt um innkomugjald, hærra gistináttagjald, náttúrupassa o.fl. án þess að niðurstaða fengist.
Landeigendur geta ekki beðið lengur eftir úrlausn þessara mála, þar sem enn er búist við verulegri aukningu ferðamanna á næstu árum, verður strax að grípa til aðgerða.
Á fundinum var ákveðið að skoða til hlítar þá hugmynd að nota bílastæðagjöld (þjónustugjöld) til fjármögnunar á uppbyggingu á svæðunum og fara sameiginlega í viðræður við aðila um heildarlausn þeirrar hugmyndar. Jafnframt verði unnið að gerð þjónustusamninga milli ferðaþjónustuaðila og langdeigenda.
Samkvæmt frétt Morgunblaðsins er hér um að ræða landeigendur við Seljalandsfoss, Skógafoss, Sólheimajökul, Dyrhólaey og Reynisfjöru.