Fimmtudagur 1. október 2015

Vefþjóðviljinn 275. tbl. 19. árg.

Skífuritið hér að ofan er fengið af vef ON. Raforkunni frá Orku náttúrunnar fylgir bæði kolaryk, geislavirkur úrgangur, brennisteinsmengun og gróðurhúsalofttegundir. Fyrir það fékk hún umhverfisverðlaun í gær.
Skífuritið hér að ofan er fengið af vef ON. Raforkunni frá Orku náttúrunnar fylgir bæði kolaryk, geislavirkur úrgangur, brennisteinsmengun og gróðurhúsalofttegundir. Fyrir það fékk hún umhverfisverðlaun í gær.

Í gær fengu kol og kjarnorka langþráða viðurkenningu sem umhverfisvænir orkugjafar í samgöngum á Íslandi.

Þá tók Orka náttúrunnar (veituhluti Orkuveitu Reykjavíkur) við „Umhverfisverðlaunum atvinnulífsins“.

Í rökstuðningi dómnefndar sagði meðal annars að Orka náttúrunnar (ON) hefði:

tekið þeirri áskorun sem felst í því að ein besta leiðin til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda er að rafvæða samgöngurnar.

Eins og menn geta kynnt sér hér á vef ON er rafmagnið sem félagið selur viðskiptavinum framleitt að einum þriðja með jarðefnaeldsneyti (olíu, kolum og gasi) og nær fjórðungi með kjarnorku. Á vefnum kemur jafnframt fram að rafmagnskaupum frá ON fylgi útblástur gróðurhúsalofttegundarinnar koldíoxíðs upp á 298,69 g á hverja kWh og losun geislavirks úrgangs upp á 0,65 mg/kWh. 

Þetta kemur til af því að ON hefur skipt á „upprunavottorðum“ við evrópsk kjarnorku- og kolaver. Notendur kjarn- og kolaorkunnar í Evrópu geta því kallað sína orkunotkun hreina, græna og endurnýjanlega en viðskiptavinir ON sitja uppi með losun gróðurhúsaloftegunda og geislavirks úrgangs.

Reikningur frá ON þar sem uppruni seldrar raforku kemur fram.
Reikningur frá ON þar sem uppruni seldrar raforku kemur fram.

Viðskiptavinir ON geta aðeins séð þennan uppruna raforkunnar á rafmagnsreikningum sínum einu sinni á ári líkt og sjá má á reikningum hér að ofan. Hvers vegna ætli þessar upplýsingar séu ekki á rafmagnsreikningum hvers mánaðar?

Og nú vaknar að sjálfsögðu sú spurning hvort rafmagnsbíll sem knúinn er orku úr kolabruna og kjarnahvörfum sem ON selur á rafmagnsbíla sé „umhverfisvænni“ en venjulegur bíl sem brennir bensíni? Svarið við þeirri spurningu þyrfti einnig að taka tillit til brennisteinsins sem ON eys yfir borgarbúa og nærsveitir úr Hellisheiðarvirkjun.