Laugardagur 25. júlí 2015

Vefþjóðviljinn 206. tbl. 19. árg.

Nú dynja auglýsingar á landsmönnum: Bótaskrárnar eru komnar út. Kaupið bótaskrárnar!

Tryggingastofnun sendir frá sér lista yfir hæstu bótaþega í hverju kjördæmi og fréttamenn lesa þá upp. Engin lagaheimild er fyrir því að senda þetta út en það er gert samt, og enginn fettir fingur út í það, af ótta við að vera talinn vinur bótaþega.

Fjölmiðlar vinna svo upp úr bótaskránum. Þeir birta lista yfir hæstu atvinnuleysisbótaþega, hæstu örorkubótaþega, hæstu vaxtabótaþega, hæstu barnabótaþega, og svo framvegis.

Þeir fáu sem mótmæla þessu og benda á að hér sé fjallað opinberlega um viðkvæm persónuleg málefni fá þau svör að í fyrsta lagi eigi þetta að vera opinberar upplýsingar, þar sem bótagreiðslurnar komi úr sameiginlegum sjóðum. Fólk sem borgi skatta eigi rétt á að vita í hvað skattarnir fara. Í öðru lagi er sagt að birting bótaskránna sé mikilvæg í baráttunni gegn bótasvikum. Menn þori ekki að þykjast vera atvinnulausir en vinna samt svart, ef þeir vita að bótaskráin verður birt.

Ef þessi rök duga ekki er því bætt við að fjárhagslegar upplýsingar séu ekkert viðkvæmar upplýsingar, nema menn hafi eitthvað að fela.

Og þess vegna halda Bótaskrárnar áfram að koma út.