Laugardagur 11. október 2014

Vefþjóðviljinn 284. tbl. 18. árg.

Arnar Sigurðsson vínáhugamaður birti í gær á Facebook glæruna hér að neðan en hún úr kynningarefni forstjóra ÁTVR. Þetta er áhugavert því stuðningsmenn einokunar ÁTVR með verslun með áfengi halda því jafnan fram að „heft aðgengi“ sé ein helsta réttlætingin fyrir einokuninni.

Það fer tvennum sögum af því hvort er ÁTVR rekin til að auðvelda eða torvelda aðgengi að áfengi.
Það fer tvennum sögum af því hvort er ÁTVR rekin til að auðvelda eða torvelda aðgengi að áfengi.

Arnar tekur jafnframt dæmi af verslun ÁTVR á Vopnafirði:

Velta Einokunarverslunar Ríkisins á Vopnafirði er 37m. á ársgrundvelli. Miðað við 12% álagnigu ætti slíkt að gefa um kr. 370.000 á mánuði til rekstursins, þ.m.t. greiðslu flutningskostnaðar. Ríkisrekstur í hnotskurn.

Svo litlar tekjur standa auðvitað ekki undir sérverslun en gætu rennt styrkari stoðum undir aðra verslun, til að mynda matvöruverslun, í litlum plássum.