Þriðjudagur 7. október 2014

Vefþjóðviljinn 280. tbl. 18. árg.

Er það ekki svolítið eins og að skafa úr nösinni með tungunni að ætla ríkisstyrktum, kvótasettum og tollvernduðum mjólkuriðnaði að starfa eftir svokölluðum samkeppnislögum?
Er það ekki svolítið eins og að skafa úr nösinni með tungunni að ætla ríkisstyrktum, kvótasettum og tollvernduðum mjólkuriðnaði að starfa eftir svokölluðum samkeppnislögum?

Nú spyr hver upp eftir öðrum: á ekki að afnema undanþágu Mjólkursamsölunnar frá samkeppnislögum? Eru menn ekki að grínast?

Er mönnum alvara með því að framleiðslugrein sem nýtur 6.000 milljóna króna ríkisstuðnings á ári, starfar í landi þar sem bannað er að mestu að flytja inn mjólkurafurðir og framleiðsluréttur er kvótasettur, eigi að starfa eftir samkeppnislögum?

En skrattinn, á hann ekki líka að starfa eftir boðorðunum tíu?

Hvernig væri að byrja á réttum enda í þessu máli og afnema niðurgreiðslur, tollvernd og önnur ríkisafskipti af mjólkurbúskap og mjólkurvinnslu? Er það ekki líklegra til árangurs en að bæta í ríkisafskiptin með svokölluðu samkeppniseftirliti?

Hvernig væri að byrja á því að leyfa samkeppnina áður en samkeppniseftirlitið mætir með samkeppnislögin á staðinn?