Laugardagur 26. október 2013

Vefþjóðviljinn 299. tbl. 17. árg.

Árið 2010 gáfu umhverfisverndarsamtökin Environmental Defense Fund út einskonar handbók um kvótakerfi í sjávarútvegi Catch Share Design Manual – A Guide for Managers and Fishermen. Þau hafa svo haldið áfram að viða að sér gögnum frá öllum heimshornum um málið eins og sjá má á vef þeirra.

Í handbókinni er reynsla yfir 30 landa af kvótakerfi tekin til skoðunar og að sjálfsögðu er Ísland þar á meðal. Kvótakerfi er beitt við nýtingu nokkur hundruð fiskistofna og hefur þeim fjölgað jafnt og þétt undanfarna áratugi

Ástæða þess að umhverfisverndarsinnar hafa áhuga á kvótakerfum við fiskveiðar er að ýmsar aðrar leiðir hafa verið reyndar án þess að tekist hafi að stöðva ofveiði og hnignun fiskistofna.

Eins og umræðan um þessi mál á Íslandi hefur svo glögglega leitt í ljós er auðveldra að agnúast út í kvótakerfið en að benda á betra kerfi í stað þess.

Fiskveiðikvótar breiðast út um heiminn. Lönd þar sem slíka kvóta er nú að finna eru lituð ljósblá.
Fiskveiðikvótar breiðast út um heiminn. Lönd þar sem slíka kvóta er nú að finna eru lituð ljósblá.