Fimmtudagur 23. maí 2013

Vefþjóðviljinn 143. tbl. 17. árg.

Útlendingar eru 77% hótelgesta á Íslandi. Hví eiga þeir ekki að greiða virðisaukaskatt af þeirri þjónustu sem þeir kaupa hér á landi eins og Íslendingar gera af ýmsum nauðsynjum?
Útlendingar eru 77% hótelgesta á Íslandi. Hví eiga þeir ekki að greiða virðisaukaskatt af þeirri þjónustu sem þeir kaupa hér á landi eins og Íslendingar gera af ýmsum nauðsynjum?

Í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar segir að lagðar verði fram:

…tillögur til úrbóta með það að markmiði að einfalda skattkerfið, breikka skattstofna, minnka tekjutengingar og draga úr undanskotum.

Alveg ljómandi fínt.

En svo segir í kafla um ferðþjónustu:

Fallið verður frá áformum fyrri ríkisstjórnar um hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu.

Hvers vegna á að flækja skattkerfið með því að hafa „ferðaþjónustu“ í sérstöku skattþrepi? Þetta er þeim mun undarlegra því að í nýju ríkisstjórninni eru menn sem hafa unun af því að segjast ætla að vera  með stærilæti við útlendinga sem eiga peninga. Á síðasta ári keyptu útlendingar 77% seldra gistinátta hér á landi og þetta hlutfall mun halda áfram að hækka á næstu árum. En nú á að undanþiggja útlendinga frá því að greiða virðisaukaskatt af gistingu þegar þeir koma í virðisaukaskattslausa laxveiðina.

Svo segir í kafla um menningarmál:

Tónlist njóti sömu hvetjandi ívilnana og kvikmyndagerð, þ.e. að hluti kostnaðar við tónlistarupptökur verði endurgreiddur.

Hvað með striga- og litakaup listmálarans?

Formaður Sjálfstæðisflokksins lýsti jafnframt í viðtali áhuga á því að afnema virðisaukaskatt af barnafötum.

Hér eru því komnar fram nokkrar tillögur af pönnsu- og vöffluborðinu um hvernig má flækja skattkerfið og mismuna skattgreiðendum. 

Fer þessum hveitibrauðsdögum ekki að ljúka?