Fimmtudagur 4. apríl 2013

Vefþjóðviljinn 94. tbl. 17. árg.

Málgagn Framsóknarflokksins kallar stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins „skitin 22,4 prósent.“
Málgagn Framsóknarflokksins kallar stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins „skitin 22,4 prósent.“

Framsóknarflokkurinn gefur úr málgagn sitt Tímann á netinu. Í dag fjallar ritstjórn Tímans um stöðu Sjálfstæðisflokksins í greininni „Örvænting Sjálfstæðisflokksins“. Þar segir: 

Skjótt skipast veður í loftið en með með hækkandi sól hefur fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkað mikið og situr nú í skitnum 22,4 prósentum.

Það er nýlunda að málgagn stjórnmálaflokks kalli fólkið sem kýs aðra flokka „skitið“. 

En kannski er við hæfi að slíkt komi frá Framsóknarflokknum sem notaði tækifærið í janúar 2009, á meðan grjóti og skít var kastað í lögregluna og þinghúsið, til að koma Jóhönnu og Steingrími til valda.