Laugardagur 23. febrúar 2013

Vefþjóðviljinn 54. tbl. 17. árg.

Steingrímur J. Sigfússon formaður vinstri grænna öskraði í ræðu við setningu landsfundar VG að „nýfrjálshyggjan“ væri „versta hagkerfi, versta hugmyndafræði sem fundin hefur verið upp á jörðinni.“

Verri en kommúnisminn og þjóðernissósíalisminn, hugdettur Rauðu khmeranna og Stóra stökkið.

Það þarf því enginn að skammast sín fyrir að flagga fána morðvéla eins og Sovétríkjanna:

Eða bregða sér í búning Che Guevara:

Þetta er allt saman hálfgert grín í samanburði við „nýfrjálshyggjuna.“