Þriðjudagur 21. ágúst 2012

Vefþjóðviljinn 234. tbl. 16. árg.

Á síðustu fjórum árum hafa skuldir hins opinbera farið úr 700 í 2.100 milljarða króna. Stór hlut þessara nýju skulda er í erlendri mynt. Um þessa ofboðslegu skuldsetningu var enginn spurður.

Íslenskir stjórnmálamenn hafa með þessu steypt þjóðinni í nýjar skuldir sem nema um 4 milljónum króna á hvern mann eða um 16 milljónum króna á hverja fjögurra manna fjölskyldu. 

Næst á dagskrá þingmanna: Banna smálánin.