Þriðjudagur 19. júní 2012

Vefþjóðviljinn 171. tbl. 16. árg.

Boltinn fer yfir ensku marklínuna en þrátt fyrir sérstaka eftirlitsmenn með marklínunum voru Úrkaínumenn ekki taldir hafa skorað.
Boltinn fer yfir ensku marklínuna en þrátt fyrir sérstaka eftirlitsmenn með marklínunum voru Úrkaínumenn ekki taldir hafa skorað.

Við hrunið – hér varð auðvitað hrun hrunið  – voru virðulegar eftirlitsstofnanir sagðar hafa brugðist. Greindustu menn þjóðarinnar komust þá að þeirri niðurstöðu að meira þyrfti af eftirlitinu sem hafði brugðist og stofnanirnar sem brugðust vonum manna voru verðlaunaðar með meiri peningum, fleiri starfsmönnum og meiri íburði í húsakosti og innréttingum.

Þetta ráð hefur nú spurst til annarra landa og yfir í aðrar greinar. Knattspyrnumenn hafa til að mynda lengi leitað ráða til að skera úr um hvort „boltinn hafi allur farið yfir línuna“ sem skiptir talsverðu máli í þeirra grein.

Til að bregðast við þessu hefur knattspyrnusamband Evrópu fjölgað línuvörðum á knattspyrnuleikjum úr 3 í 5. Viðbótareftirlitsmennirnir tveir virðast hafa fátt annað á sinni könnu en að fylgjast með því hvort boltinn fari yfir jafnmargar marklínur. Ein marklína á mann.

Undir kvöld léku Englendingar við Úkraínumenn á EM. Samkvæmt sjónvarpsmyndum komu Úkraínumenn boltanum yfir marklínuna á 63. mínútu. En nýi eftirlitsmaðurinn taldi boltann bara alls ekki hafa farið yfir línuna og dómari leiksins tók hann trúanlegan.

Kannski hefði aðaldómarinn dæmt markið gott og gilt ef hið aukna eftirlit hefði ekki villt um fyrir honum.