Vefþjóðviljinn 64. tbl. 16. árg.
Vinstri flokkarnir hafa ætíð haft mikinn áhuga á fagmennsku við ráðningar starfsmanna í stjórnkerfinu. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra skýrði þennan áhuga nýlega í grein.
Frá því að ég tók við sem forsætisráðherra hef ég lagt mikla áherslu á umbætur í stjórnsýslu og eru ráðningar starfsmanna þar stór þáttur. Staðreyndirnar tala sínu máli. Frá því að ríkisstjórnir mínar tóku við hefur verið skipað í fjölmargar stöður innan stjórnkerfisins og af þeim ráðningum má ljóst vera að margt hefur færst til betri vegar.
Vefþjóðviljanum þykir því sjálfsagt að renna yfir nokkur fagverk ríkisstjórnarinnar í mannaráðningum svo ófaglegir geti lært örlítið til verka.
Fyrst ber að sjálfsögðu að telja ráðningu skrifstofustjóra í forsætisráðuneyti Jóhönnu því þar koma jafnréttismál einnig við sögu. Að faglegum ráðningum slepptum hefur Jóhanna ætíð lagt mesta áherslu á jafnréttismál og forsætisráðuneytið hefur nú tekið málaflokkinn yfir til að geta gert honum vegleg skil. Anna Kristín Ólafsdóttir stjórnsýslufræðingur var meðal umsækjenda um starf skrifstofustjóra en fékk ekki eftir faglega jafnréttismeðferð Jóhönnu. En kærunefnd jafnréttismála úrskurðaði að forsætisráðherra hafi brotið gegn ákvæðum jafnréttislaga þegar karl var ráðinn. Anna Kristín ætlar að sækja bætur fyrir fagmennsku Jóhönnu fyrir dómstólum.
Næst verður að telja ráðningu Norðmannsins Svein Harald Øygard í starf seðlabankastjóra. Í 20.grein stjórnarskrár er kveðið á um að „engan megi skipa embættismann, nema hann hafi íslenskan ríkisborgararétt.“ Stjórnarskráin bannar að útlendingur sé skipaður í embætti á Íslandi, og af því leiðir að sjálfsögðu að óheimilt er að setja hann í starfið.
En Norðmaðurinn stoppaði stutt við í starfi seðlabankastjóra. Haustið 2009 var í hans stað ráðinn Már Guðmundsson. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lofaði Má háum launum en setti einnig þá reglu að enginn mætti vera með hærri laun en hún sjálf. Már hefur nú stefnt seðlabankanum fyrir dóm til að fá launin leiðrétt. Áður hafði Már þó lýst því yfir að hann þæði ekki 400 þúsund króna launahækkun yrði hún boðin. Már skýrði jafnframt Jóhönnu Sigurðardóttur frá því að „í hinum alþjóðlega seðlabankaheimi“ væri grannt fylgst með því hvort hann fengi 400.000 króna launahækkunina sem honum hefði verið lofað í forsætisráðuneytinu, þrátt fyrir úrskurð kjararáðs. Það myndi hafa slæm áhrif á orðspor Íslands ef launin yrðu ekki hækkuð.
Í júní 2010 hætti Guðmundur Bjarnason sem forstjóri Íbúðalánasjóðs. Tóku þá við margra mánaða slagsmál stjórnar Íbúðalánasjóðs og Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra um ráðningu nýs forstjóra. Í lok ágúst sagði Hákon Hákonarson, stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs, íhlutun félagsmálaráðherra í ráðningu forstjóra sjóðsins koma sér á óvart. Ráðherra sendi stjórninni bréf þar sem hann stakk upp á að skipa valnefnd sem fjalla ætti um umsækjendur um starfið. Honum leist ekki á að stjórnin kæmist að réttri niðurstöðu. Meðal umsækjenda var Yngvi Örn Kristinsson sem Árni hafði fengið til liðs við sig í félagsmálaráðuneytið sem ráðgjafa. Stjórnin lét undan þrýstingu ráðherrans um að skipa valnefnd og í kjölfarið dró Ásta H. Bragadóttir, starfandi framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, umsókn sína til baka. Ekki fékkst botn í málið fyrr en í byrjun nóvember þegar nýr framkvæmdastjóri tók loks við.
Hinn 3. Ágúst 2010 lét Runólfur Ágústsson af starfi umboðsmanns skuldara og hafði þá gegnt því óslitið frá sólarupprás. Eða frá því að Árni Páll Árnason réð hann í starfið og þar til Árni Páll Árnason óskaði eftir því við Runólf að hann hefði sig á brott úr starfinu. Árna þótt opinber umræða um fjárfestingar Runólfs fyrir hrun óþægileg en þó segist Runólfur hafa upplýst ráðherrann um stöðuna þegar hann var ráðinn í starfið.
Bankasýsla ríkisins er ný ríkisstofnun vinstri flokkanna sem þeir hafa reist frá grunni með fagmennsku að leiðarljósi. Elín Jónsdóttir var ráðin forstjóri að hinni nýju stofnun. Einu og hálfu ári síðar hvarf hún á braut án þess að vera búin að ráða sig til annarra starfa og auglýst var eftir nýjum forstjóra. Stjórnin ákvað að ráða Pál Magnússon bæjarritara í Kópavogi því hún taldi hann hæfastan umsækjenda. En áður en Páll tók við starfinu hófst mikill bægslagangur á bloggum og í Helga Hjörvar í ræðustól á Alþingi. Það endaði með því að Páll þáði ekki starfið.
Að síðustu hlýtur vinstri stjórnin verðlaun félags faglegra fyrir ráðningu og einkum uppsögn Gunnars Andersen forstjóra fjármálaeftirlitsins. Svo farsælt og faglegt er það mál allt saman að stjórn eftirlitsins hefur kært Gunnar til lögreglu og Gunnar telur á móti að stjórnin hafi brotið margvíslega á sér.