33. tbl. 13. árg.
H versu margir fréttamenn hafa rifjað upp stór orð forystu Samfylkingarinnar fyrir örfáum vikum, þess eðlis að ef Sjálfstæðisflokkurinn gerbreytti ekki Evrópustefnu sinni, þá væri stjórnarsamstarfinu sjálfhætt? Nú þegar Samfylkingin er skyndilega komin í stjórn með vinstrigrænum og ekki er minnst á Evrópumál í stefnuskrá stjórnarinnar, skyldi nú einhver ætla að tilefni væri fyrir fréttamenn að rifja þetta upp. En nei, endursýningar á viðtölum og ræðum Samfylkingarmanna hafa enn sem komið er verið jafn margar og kjósendur Gylfa Magnússonar.
- Geir Haarde sagði á dögunum að Samfylkingin hefði látið stjórnast af ótrúlega miklu hatri á einum manni. Samfylkingarmenn brugðust ókvæða við og töldu það hina mestu fjarstæðu. Til að afsanna þetta, segir Jóhanna Sigurðardóttir að skipulagsbreytingar í Seðlabanka Íslands sé meginforgangsmál Samfylkingarinnar í nýju ríkisstjórninni, sem aðeins hefur örfáa daga til starfa. Það er nefnilega einmitt þetta sem atvinnulaust fólk hefur mestar áhyggjur af, hvernig skipurit seðlabankans líti út til framtíðar.
- Nýja ríkisstjórnin vill auka „persónukjör“ við kosningar til alþingis. Það er einmitt það sem helst vantar í íslensk stjórnmál, meiri egóismi og meira lýðskrum. Að hver og einn frambjóðandi taki að reyna að yfirbjóða aðra frambjóðendur á eigin lista, setja fram prívat stefnu í hverju máli, eftir því sem hann heldur að vindar blási. Þetta er brýnt framfaramál.
- Gylfi Magnússon dósent var ræðumaður á útifundi Harðar Torfasonar fyrir nokkrum dögum. Í innblásinni ræðu sinni sagði Gylfi að „enginn“ þeirra sem hefði komið nálægt því að sigla hér öllu í strand mætti koma nálægt björgunaraðgerðum – því landkrabbar landsins tala nú bara sjómannamál. Nokkrum dögum síðar stökk Gylfi í ráðherrasæti í ríkisstjórn Samfylkingarinnar, sem fór með ráðuneyti bankamála þegar bankarnir fóru í þrot. Gylfi situr nú hress í ríkisstjórn undir forystu ráðherra sem einnig sat í síðustu ríkisstjórn og gerði þar engar athugasemdir við hvernig haldið var á málum.
- Gylfi Magnússon, formaður stjórnar Samkeppniseftirlitsins, taldi að öll stjórnvöld nema stjórn Samkeppniseftirlitsins ættu að segja af sér. Undanfarin misseri varaði seðlabanki Íslands ríkisstjórnina við því að bankarnir stefndu í þrot. Gylfi vill reka bankastjóra seðlabankans en situr glaður í stjórn með þeim sem sátu í fyrri ríkisstjórn.
- Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins fagnar ýmsu í verkefnaáætlun nýju ríkisstjórnarinnar. Hann fagnar áherslu á lækkun vaxta og afnám gjaldeyrishafta en einkum þó stuðningi stjórnarinnar við áætlun alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Það er einmitt hún sem olli hér 6 % vaxtahækkun í nóvember og gjaldeyrishöftum. Þá krefst Vilhjálmur mikils aðhalds í opinberum útgjöldum en fagnar áformum um stórfelldar mannaflsfrekar framkvæmdir á vegum hins opinbera.
- Ætlar enginn fréttamaður að ræða við vinstri græna um nokkurra vikna gömul orð þeirra um alþjóða gjaldeyrissjóðinn og áætlun hans? Nýr fjármálaráðherra telur það verða lykilatriði í störfum sínum að vinna eftir þeirri áætlun. Fréttamönnum til upprifjunar heitir ráðherrann Steingrímur J. Sigfússon og er frægur af því hve hann er málefnalegur og samkvæmur sjálfum sér.
- Steingrímur J. kom til ríkisráðsfundar á Bessastöðum á 30 ára gömlum Volvo. Vinstri grænir hafa lagt á það mikla áherslu að blanda ekki sýndarmennsku og auglýsingaskrumi við stjórnmálin. Það eru málefnin sem skipta máli.