Þriðjudagur 2. september 2008

246. tbl. 12. árg.

Í dag bætist ný bók í Bóksölu Andríkis, nokkuð ólík flestum þeim sem þar eru fyrir, en áhugaverð allt að einu. Fyrir tveimur árum kom hingað til lands maður nokkur sem allir helstu fjölmiðlar landsins tóku við löng og mikil viðtöl, og sögðu hann frægan um veröld alla af trúleysi sínu. Þessi maður, Richard Dawkins, hefur skrifað bók um hjartans mál sitt, trúleysi annarra, og hefur hún selst mikið og verið hafin á margan stall.

Dawkins er vísindamaður og ber vísindin fyrir sig í því að menn eigi ekki að trúa á Guð. Í umræddri bók, sem kalla mætti Ranghugmyndina um Guð – eða The God Delusion á frummálinu – boðar hann almenna guðsafneitun af ákefð og mælsku.

En það eru fleiri vísindamenn í heiminum og einn þeirra nefnist Alister McGrath og er nú talinn einn fremsti guðfræðingur heims. En hann hefur einnig annan bakgrunn, en hann hefur lokið doktorsprófi í sameindalífeðlisfræði og var sjálfur á yngri árum kunnur guðsafneitari. Hann er því á margan hátt tilvalinn til að takast á við þau sjónarmið sem Dawkins setti fram í sinni umtöluðu bók, og það hefur McGrath nú gert í bók sem hann skrifar ásamt eiginkonu sinni, sálfræðingnum Joanna Collicutt McGrath.

Bók þeirra hjóna, sem heitir einfaldlega Ranghugmynd Richards Dawkins, er afar áhugaverð. Þau fara yfir málflutning Dawkins og þykir þeim árásir hans á kristindóminn einkennast af ofstæki. Tekin eru ótal dæmi af röksemdafærslum og baráttuaðferðum Dawkins og er óhætt að segja að ekki verða þau öll til þess að auka trúna á boðskap hans, þó auðvitað sé rétt að hafa í huga að sjálfur er hann ekki til svara í þeirra bók. Ekki eru þau hjónin í trúboði í bókinni, en beina einfaldlega sjónum að ýmsum þeim atriðum sem haldið hefur verið fram í trúleysisboði undanfarinna ára, svo sem þeirri vinsælu staðhæfingu að vísindi og trúarbrögðin eigi í samfelldri baráttu og að vísindamaður hljóti að vera trúlaus.

Ranghugmynd Richards Dawkins er kilja, 124 blaðsíður að lengd og kostar 1990 krónur í Bóksölunni og er heimsending innanlands innifalin í verðinu eins og ætíð í Bóksölunni. Umrædd bók Dawkins fæst svo vitanlega hjá helstu erlendu bókaverslunum, svo sem Foyles  og Amazon.  Af öðrum bókum Bóksölunnar þar sem glímt er við mikilvægar spurningar tilverunnar má nefna bók heimspekingsins Atla Harðarsonar, Af jarðlegum skilningi, en sú bók er eins konar inngangur að heimspekilegri veraldarhyggju; fyrir þá sem vilja skilja mannlífið jarðlegum skilningi.