Miðvikudagur 29. október 2003

302. tbl. 7. árg.

Lögð hefur verið fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um aðgerðir gegn ójafnvægi í byggðamálum. Tillagan gerir ráð fyrir að fela ríkisstjórninni að leggja fyrir Alþingi áætlun um aðgerðir til að draga úr „fyrirsjáanlegu ójafnvægi í byggðamálum“. Helstu röksemdirnar fyrir flutningi tillögunnar koma fram í greinargerð með henni og þær lýsa ágætlega hversu líklegt er að „aðgerðir“ í byggðamálum skili árangri. Vandinn er nefnilega sá, ef marka má greinargerðina, að verið er að gera of mikið í byggðamálum og þess vegna þarf að gera meira. Þetta hljómar auðvitað einkennilega í eyrum flestra, sem skýrist af því að flestir eru ekki þingmenn annarra kjördæma en Norðausturkjördæmis. Flutningsmenn þingsályktunartillögunnar eru tveir nútímalegir þingmenn Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi og þeir sjá fyrir sér mikinn vanda í kjördæmi sínu vegna framkvæmda í næsta kjördæmi. Og þar sem þeir telja að ríkið beri ábyrgð á framkvæmdunum í næsta kjördæmi vilja þeir að ríkið hlutist til um enn frekari framkvæmdir annars staðar, og þá vafalaust í Norðvesturkjördæmi.

Orðin kjördæmapot og sérhagsmunagæsla eru meðal fjölmargra sem koma upp í hugann þegar slíkar tillögur eru lesnar, en tillagan sýnir hve langt sumir þingmenn jafnvel þessir nútímalegu jafnaðarmenn eru tilbúnir að ganga til að kaupa atkvæði. En um leið sýna þeir óvart fram á hve vitlaus hin svo kallaða byggðastefna er, því ef marka má tillöguna verður aldrei nóg að gert í byggðamálum. Einn landshluti eða eitt byggðarlag mun væntanlega alltaf fá meira í sinn hlut en aðrir þegar ríkið útdeilir skattfé í nafni byggðastefnu, og þá verður það væntanlega alltaf að nýrri og nýrri röksemd fyrir auknum framlögum til málaflokksins. Ef mikið er framkvæmt á Norðausturlandi þarf næst að framkvæma mikið á Norðvesturlandi, því næst á Suðurlandi og svo koll af kolli, hring eftir hring.

Hugmyndir um meint „ójafnvægi í byggðamálum“ eða tilraunir til að ná fram „jafnvægi í byggð landsins“ eru af ýmsum ástæðum dæmdar til að mistakast. Og jafnvel þótt ríkið kæmist að niðurstöðu um að einhver tiltekin dreifing byggðar væri æskilegt markmið í byggðamálum og tækist að þvinga þá dreifingu fram, þá verður aldrei hægt að kalla þá dreifingu jafnvægi. Ríkið mun aldrei geta tryggt jafnvægi í byggð landsins nema með því að hætta afskiptum af byggðaþróun. Ríkið getur hins vegar, með því að dreifa skattfé út um landið, viðhaldið ójafnvægi í byggð landsins og komið í veg fyrir að eðlilegt jafnvægi náist.