Mánudagur 27. mars 2000

87. tbl. 4. árg.

Reynt að fjarlægja "hvíta disk" geimveranna úr höfði annars bókarhöfundar. - Það mistókst.
Reynt að fjarlægja “hvíta disk” geimveranna úr höfði annars bókarhöfundar. – Það mistókst.

Á myndinni sést hvernig reynt er að fjarlægja ígræðsluna úr eyra vitnis Morgunblaðsins í loftslagsmálum. Geimverur höfðu grætt hlutinn í vitnið þegar það var numið brott.

Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins í gær var á trúarlegu nótunum, ja eiginlega þessum auðtrúanlegu. Efni þess hefur þó ekkert með trúarbrögð að gera heldur umdeildar kenningar um mögulegar breytingar á andrúmslofti jarðar. Í Reykjavíkurbréfinu var hins vegar lítið rætt um vísbendingar með og á móti þessum kenningum heldur er  nýtt syndafall boðað. Það mun ekki verða á fljótandi formi að þessu sinni heldur sem ís sem mun leggjast yfir allt norðurhvel jarðar. Það sem höfundur bréfsins hefur fyrir sér um þetta fær hann aðallega úr bókinni The Coming Global Superstorm. Annar höfunda þessarar bókar, Whitley Strieber, heldur því fram að hann hafi verið brottnumin af geimverum en skilað aftur. Hann segir geimverurnar hafa skilið eftir lítinn hlut í líkama sínum og er ánægjulegt að geta vitnað beint í þennan ágæta heimildarmann Morgunblaðsins um vísindaleg álitaefni: „Ég lét gera tilraun til að fjarlægja ígræðsluna síðastliðið haust en það mistókst. En hluturinn sem sást, „hvítur diskur“, var ekki eitthvað sem sést venjulega í mannslíkamanum. Þrátt fyrir þá staðreynd að hann hafði verið festur í brjóskið færði hluturinn sig undan hnífi skurðlæknisins og kom sér fyrir í öðrum hluta eyrans en færði sig þó á upphaflegan stað eftir að skurðurinn hafði verið saumaður saman.“ Frekari lýsing af þessum hremmingum mannsins er að finna í bókinni Confirmation, sem er ein af sex bókum hans um náin kynni af geimverum.

Hinn höfundur bókarinnar, Art Bell að nafni, hefur séð um útvarpsþátt seint á kvöldin sem helgaður er fljúgandi furðuhlutum, yfirskilvitlegum atburðum og öðru því sem leitt gæti til „nýrrar heimsreglu“. Nefna má að skýringar Bells á hörmungum eins og flugslysum felast í því sem hann kallar „quickening“ sem er fyrirboði um hin óhjákvæmilegu endalok. Bell var einróma valinn besti útvarpsmaður ársins á Paranormal World Conference 2000, eða Yfirskilvitlegu alheimsráðstefnu ársins 2000. Þetta er mikill vísindaheiður.

Þegar viðfangsefni þessara tveggja manna eru skoðuð kemur skemmti- og furðuþátturinn X-Files helst upp í hugann, svo fjarstæðukennd eru viðfangsefnin og umfjöllunin. Það verður að teljast sérstakt, svo ekki sé meira sagt, að Morgunblaðið skuli gera slíka menn að heimildarmönnum um vísindaleg málefni. Staðreyndin er sú að engin ástæða er til að vera með hræðsluáróður og heimsendaspár en full ástæða til að ræða þessi mál eins og önnur með rökstuðningi og stuðningi við staðreyndir. Til dæmis má benda á heimasíðu Ágústs H. Bjarnasonar rafmagnsverkfræðings um kenningar um hlýnun andrúmslofts jarðarinnar. Þar er t.d. að finna skoðanir erlendra fræðimanna sem hafa það ekki helst sér til ágætis að hafa verið brottnumdir af geimverum.