Eitt af mörgu sem umhverfisverndarsinnar hatast við eru umbúðir. Frægur er áróður þeirra fyrir því að menn kreisti appelsínur sínar sjálfir í stað þess að kaupa tilbúinn appelsínusafa í fernu, plastdollu eða glerflösku. Móðir náttúra hefur að þeirra mati búið til bestu umbúðirnar þ.e. appelsínubörkinn. Til að draga úr mesta samviskubiti fólks þegar það kaupir sér tilbúinn ávaxtassafa má geta þess að verksmiðjur ná mun meiri safa úr appelsínunni en venjulegur heimakreistari og hratið sem eftir verður í verksmiðjum er nýtt í dýrafóður en heima endar það í ruslinu sem flytja þarf á haugana. Auk þess er mun dýrara að flytja ferskar appelsínur til neytenda en tilbúinn safa enda eru þær nær sjöfalt þyngri en sambærilegt magn af tilbúnum safa á fernu. Það má því segja að sjö trukkar bruni með appelsínurnar í búðir til þeirra neytenda sem kreista sjálfir á meðan einn sér um að flytja safa til þeirra neytenda sem hafa ekki fallið fyrir boðskap umhverfisverndarsinna.
Út  	er komin hjá CATO Institute bókin Climate of  	Fear eftir Thomas Gale Moore. Í bókinni er því  	haldið fram að ef andrúmsloftið muni hlýna verði  	það flestum til blessunar. Moore heldur því fram  	að hlýnun muni auka uppskeru og bæta lífskilyrði  	víðast hvar á  jörðinni og því  	eigi Bandaríkjaþing að standa gegn öllum tilraunum  	til að takmarka útblástur koltvísýrings.  	Moore hvetur menn jafnframt til að halda sig niðri á jörðinni  	í umræðum um þessi mál og reyni að bæta  	þekkingu sína á þessum málum með rannsóknum.  	
Hvort kenningar hans sjálfs eru jarðbundnari en þær  	sem ganga út á að allt sé á heljarþröm  	vegna gróðurhúsaáhrifa skal ósagt látið.  	En bókin er vissulega ágætt innlegg í umræðu  	sem fremur hefur mótast af pólítískum rétttrúnaði  	en staðreyndum. Bókina má í kaupa hjá CATO  	fyrir $9.95.