Fimmtudagur 30. október 1997

303. tbl. 1. árg.
Sjómannaafsláttur leggst af verði lagafrumvarp Péturs H. Blöndals alþingismanns um breytingar á tekju- og eignarskatt lögfest. Það væri stórt skref í átt til réttlátara tekjuskattkerfis ef þetta frumvarp yrði að lögum enda óþolandi ranglæti að sumir landsmenn njóti skattalegra sérkjara umfram aðra. Til að lesendur átti sig á því um hversu miklar upphæðir er að ræða má nefna að afslátturinn til sjómanna er 1,6 milljarður króna, þannig að ef hann yrði felldur niður mætti lækka aðra skatta verulega. Greinargerðin með frumvarpinu  er holl lesning, en þar segir m.a.: „Eðlilegt er að útgerðin beri þann launakostnað sem leiðir af  því að kjör sjómanna eftir greiðslu á tekjuskatti séu þannig að manna megi flotann í samkeppni á vinnumarkaði.“ Um þessa staðhæfingu ætti varla að þurfa að deila, en í dag er það svo að sjómannaafslátturinn kemur út sem niðurgreiðslur almennings á launakostnaði útgerðarinnar.Athygli hefur vakið að þeir sem hæst láta um að leggja sérstakan auðlindaskatt á útgerðirnar og segjast tala máli réttlætisins hafa látið minna í sér heyra vegna þessa augljósa réttlætismáls. Það má þó varla ætla þeim að vera með því að kaupa sér stuðning sjómanna.

Sem kunnugt er fór fram um síðustu helgi prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Þetta prófkjör lofar ýmsu góðu ef að sjálfstæðismenn vinna borgina, því að þeir sem náðu árangri í því lögðu allir áherslu á skattalækkanir. Þó var einhver keppni í gangi á milli frambjóðenda um hverjum gæti hugkvæmst vinsælasta nýja leiðin til að eyða krónum skattgreiðenda, hvort heldur sem það væri í vatnshana í skólum, tónlistarhús eða til íþróttamála. En það er vonandi að þegar á hólminn er komið verði prófkjörsgæluverkefni lögð til hliðar og skattalækkanir og sparnaður sett á oddinn.

Það var lengi uppi sú kenning að það væri sjálfsögð samfélagsleg þjónusta að styrkja vinstrimenn til blaðaútgáfu. Þar með gætu þeir skrifað í eigin blöð án þess að angra aðra með skrifum sínum. Þjóðviljinn, Vikublaðið, Alþýðublaðið og Tíminn voru ágæt dæmi um þetta. Atburðir gærdagsins í Þverholtinu benda ef til vill til þess að þetta hafi ekki verið svo vitlaus kenning.