19. febrúar 1997: Vaclav Klaus,  forsætisráðherra Tékklands,… 
  og einn af mönnunum á bak við hinar miklu efnahagsumbætur  þar í landi frá hruni kommúnismans kemur til landsins í dag  og heldur erindi á ráðstefnu um einkavæðingu í Perlunni  (veitingahúsi í eigu Reykjavíkurborgar!). Vert er að vekja  athygli á því að ráðstefnunni er sjónvarpað beint á  Stöð 2 kl. 17.00.
19. febrúar 1997: ,,Frelsið glatast  sjaldan allt í einu,“… 
  sagði David Hume, og í nýjasta Economist er  enn einu sinni minnt á þessi sannindi. Þar er í leiðara  fjallað um þau miklu völd sem stjórnmálamenn og aðrir  ríkisstarfsmenn í Bretlandi hafa til að takmarka frelsi manna  og brjóta á sjálfsögðum rétti þeirra með einföldum  hætti. Þannig geta menn lent í því að hið opinbera  brjótist inn í hús þeirra, hleri símann eða húsakynnin  sjálf, eingöngu vegna tilskipunar frá stjórnmálamanni eða  yfirmanni í lögreglunni. Hægt er að halda mönnum í  vikutíma án úrskurðar og sleppa svo án skýringar, svo  nokkuð sé nefnt. Þetta hljómar vissulega eins og verið sé  að lýsa alræðisríki en þó er hér um að ræða ríki þar  sem lýðræðið stendur styrkum fótum. Skýring Economist á  þessu er sú að Bretland vanti ritaða stjórnarskrá, sem  tryggir rétt manna, og vafalaust væri slík skrá til bóta.  Hitt er ljóst að það dugar ekki eitt og sér, almenningur  þarf stöðugt að vera á verði og gæta þess að  stjórnvöld gangi ekki á rétt hans.
19. febrúar 1997: Í kvöldfréttum  Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi,… 
  var sagt frá þeirri kröfu BSRB á hendur  ríkisvaldinu að fjölga ætti skattþrepum þannig að draga  mætti úr jaðaráhrifum skattkerfisins! ASÍ hefur einnig  boðað fjölgun skattþrepa sem eigi að draga úr  jaðaráhrifunum. Enginn fréttamaður hefur séð ástæðu til  að spyrja verkalýðsrekendur um þessa þversögn. Enginn  fjölmiðill hefur heldur reynt að afhjúpa þá staðreynd að  það eru einkum kröfur verkalýðshreyfingarinnar undanfarin  ár um launajöfnuð og undanlátsemi stjórnvalda sem gert hafa  jaðaráhrif skatt- og bótakerfisins svo mikil sem raun ber  vitni.
19. febrúar 1997: Birgir  Þór Runólfsson, dósent í hagfræði,… 
  ritar grein í Moggann í morgun um veiðileyfagjaldið og  kröfur Samtaka iðnaðarins þar um. Í  greininni segir Birgir m.a.: ,,Talsmenn iðnaðar hafa  á undanförnum árum kvartað undan aðstöðumun atvinnuvega,  að mörgu leyti réttilega. Krafa þeirra hefur verið sú, að  atvinnuvegum sé ekki mismunað með opinberum aðgerðum. Í  því felst að öll fyrirtæki séu háð sömu leikreglum s.s.  skattareglum og tollalögum. Hagfræðileg greining bendir  eindregið til þess, að slíkt fyrirkomulag auki hagkvæmni í  þjóðabúskapnum og sé því í samræmi við almannahag.  Krafa um sérstakan skatt á sjávarútveg gengur hins vegar í  þveröfuga átt. Hún felur í sér opinbera mismunun milli  atvinnuvega, sem getur hæglega verið efnahagslega skaðvænleg,  ekki síst ef nota á tekjurnar af skattinum til frekari ,,leiðréttingar”  á efnahagslífinu, eins og hagfræðingur samtaka iðnaðarins  gerir tillögu um.“