Batnandi manni er best að  lifa… 
segir máltækið. Það á vel við  um leiðarahöfund Morgunblaðsins, en blaðið hefur hefur á síðustu misserum  margsinnis tekið afstöðu með forræðishyggju og  ríkisafskiptum, nú síðast þegar blaðið lagðist á sveif  með vinstri mönnum á Alþingi, sem skömmu fyrir  þinglok tókst að svipta alla Íslendinga, á tilteknu  aldursskeiði, sjálfræði sínu. Nú bregður hins vegar svo  við, að í leiðara Morgunblaðsins í gær er tekin afstaða  með því að tekin verði upp skólagjöld á Íslandi.  Gefum Mbl. orðið: Skólagjöld hafa lengi verið við  lýði víða á Vesturlöndum en þó fyrst og fremst í  Bandaríkjunum og Bretlandi. Í Þýzkalandi t.d. hafa háskólar  verið opnir eins og hér og aðgangur að þeim ekki kostað  neitt. Afleiðingin er sú, að algert öngþveiti ríkir nú í  háskólum þar í landi. Skólar hér á landi stefna í sömu  átt að óbreyttu og þessi þróun er raunar löngu hafin í  Háskóla Íslands. Þess vegna má gera ráð fyrir, að á  næstu árum skapist smátt og smátt samstaða um að taka upp  skólagjöld, a.m.k. á háskólastigi. Er óskandi að  Morgunblaðið sé með þessari afstöðu sinni að færa sig  aftur í fylkingarbrjóst þeirra, sem standa vörð um einstaklingsfrelsi  og takmörkuð ríkisafskipti. Ekki veitir af. 
Helgarsprokið 6. júlí 1997
187. tbl. 1. árg.