Það hefur verið fróðlegt  að heyra umfjöllun fjölmiðlanna um… 
svokallaða menningarnótt í  Reykjavík að undanförnu. Eins og menn vita þá eru allmargir fjölmiðlungar þeirrar skoðunar að Ingibjörg  Sólrún Gísladóttir sé eini nothæfi forystumaður  þeirra vinstri manna og því má ekki gera lítið úr því  sem borgaryfirvöld taka sér fyrir hendur. Þess vegna reyna  þeir margir að láta eins og mikill menningarsigur hafi verið  unninn með því að tæplega 10.000 manns hafi  verið í miðbænum þegar flest var umrædda  menningarnótt. Enginn vill nefna, að meira að  segja sama dag og uppákoman hófst, var greint frá því að  gert væri ráð fyrir að allt að 30.000 manns  kæmu í bæinn. Og þá vissu menn vel hvernig veður var  væntanlegt! Þrátt fyrir miklar auglýsingar með myndum af Kim  Il Sólrúnu borgarstjóra voru einungis litlu fleiri í  miðbænum en um venjulega helgi! 
Þriðjudagur 19. ágúst 1997
231. tbl. 1. árg.