Jóhannes Gunnarsson, formaður  Neytendasamtakanna, hefur… 
farið mikinn í fjölmiðlum undanfarna daga vegna  einhvers viðskiptakorts sem nokkur fyrirtæki hafa gefið út í  sameiningu. Helst mætti ætla á Jóhannesi að neytendur væru  neyddir til að nota kortið en svo mun ekki vera. Hvernig væri  nú að Jóhannes og Neytendasamtökin snéru sér að einhverjum  málum sem varða neytendur í alvöru eins og skylduáskriftinni  að Ríkisútvarpinu, skyldugreiðslum í ákveðna  lífeyrissjóði og verkalýðsfélög, einokuninni í smásölu  áfengis og háum sköttum svo fátt eitt sé nefnt? Annars hefur  þessi umræða um viðskiptakortin tekið á sig fleiri  undarlegar myndir. Þannig hringir fólk í útvarpsþætti og  kvartar undan því hversu léleg þessi kort eru og fordæmir um  leið að 75 ára og eldri fengu ekki send slík kort! Þetta  minnir á karlinn sem kvartaði undan óætum mat á  veitingahúsi og bætti svo við að sér þætti heldur naumt  skammtað. Þetta minnir einnig á fólkið sem hringir í  kjaftaþættina í útvarpinu og kvartar yfir því að ekki sé  nema 20-30% afsláttur á útsölum og hringir svo daginn eftir  og kvartar yfir því hve há álagning hljóti að vera í  verslunum ef hægt sé að gefa 70-80% afslátt á útsölum.
Ríkisafskipti leiða alltaf… 
af sér misnotkun. Þannig hafa sögur gengið um að  fólk bjóði lyfsölum að kaupa af sér viðskipti svo  lyfsalinn fái hlut Tryggingarstofnunar í greiðslu lyfsins.  Fyrir lyf sem kostar 10 þúsund krónur og Tryggingarstofnun  greiðir 9 þúsund í og sjúklingi er ætlað að greiða 1  þúsund segir sagan að sjúklingurinn geti fengið lyfið og 2  þúsund kall í kaupbæti. Önnur saga er af bjórinnflytjendum  en þeir munu niðurgreiða stórar pantanir svo sem fyrir  árshátíðir félagasamtaka til að tryggja stöðu sína í  hillum verslana ÁTVR en aðeins mest seldi bjórinn hlýtur  náð fyrir augum hinnar almáttugu ríkiseinkasölu áfengis.