Vefþjóðviljinn 311. tbl. 19. árg.
Árið 2006 fékk Samfylkingin ýmsar höfðinglegar gjafir á sama tíma og þingmenn flokksins voru að leggja drög að og samþykkja lög um að banna einmitt slíkar gjafir. Meðal annars þessar:
FL GROUP hf………………………………………… 3.000.000
FL GROUP hf………………………………………… 5.000.000
Baugur Group hf……………………………………. 5.000.000
Dagsbrún……………………………………………. 5.000.000
Íslandsbanki hf……………………………………… 5.500.000
Exista hf……………………………………………… 3.500.000
Kaupþing hf…………………………………………. 11.500.000
Landsbanki Íslands hf………………………………. 8.500.000
Þarna eru yfir 20 milljónir króna frá fyrirtækjum sem voru ekki alls óskyld eins og þau fjögur fyrstnefndu.
Samt er Samfylkingin aldrei skrifuð SamFLkingin. Hún er aldrei spurð hvort hún ætli ekki að skila þessum góðu gjöfum. Og aldrei spyrja fjölmiðlar um leynilega bakhjarla hennar, Alþýðuhús Reykjavíkur eða Sigfúsarsjóð.