Fimmtudagur 27. mars 2014

Vefþjóðviljinn 86. tbl. 18. árg.

Á dögunum var hér fjallað um slagsíðu Ríkisútvarpsins og hversu algeng hún er í dagskrá þess og ekki bundin við fréttatímana eina. Í gær skrifaði Kári Gunnarsson kennari grein í Morgunblaðið þar sem hann lýsti umræðuþætti sem hann hafði fylgst með, á sama tíma og hann var að dunda í bílskúrnum á sunnudagsmorguninn. Kári sagði að hann hefði ætlað sér að vera búinn að slökkva áður en þátturinn byrjaði en svo hefði hann ekki nennt því.

En skömmu síðar heyrði ég að þáttastjórnandinn var farinn að ræða við formann Samfylkingarinnar. Fyrst hélt ég að um væri að ræða koddahjal ungra elskenda, svo vel fór á þeim. GMB hóf mál sitt á þeirri hlutlausu alhæfingu að ríkisstjórn landsins „væri með allt niður um sig“ og um það gátu þeir Árni Páll verið sammála. Ég gerði mitt besta til að leiða samræður þeirra féaga hjá mér næstu múnútur en heyrði þó frasa á stangli: Kíkja í pakkann, tollamúrar, Mjólkursamsalan, þjóðarvilji, gul spjöld og rauð.

Í mínum huga hafði eitt mál verið í fréttum vikunnar, sem vakti öðrum fremur spurningar. Það var hvernig seðlabankastjóri Samfylkingarinnar hafði fengið milljónir hjá bankaráðsmanni Samfylkingarinnar, að vísu ekki úr hennar vasa, heldur skattgreiðenda. Þessi fjárstuðningur við bankastjórann kom til vegna þess að hann hafði staðið í þeirri meiningu að smu lög giltu ekki um hann og aðra. Hafði hann verið gerður aftureka fyrir tveimur dómstigum með þessar ranghugmyndir og hlotið af því nokkurn kostnað. Honum fannst rétt að skattgreiðendur bæru þennan kostnað og fróðlegt hefði verið að heyra skoðun Árna Páls á málefninu. Þegar ég heyrði að GMB kvaddi formann Samfylkingarinnar án þess að bera þetta mál undir hann varð ég dolfallinn. Ég aðgætti hvort ég hefði nokkuð gleymt að skrúfa fyrr gasið á suðuvélinni og hefði því getað hnigið í ómegin um stund, en svo var ekki. Þetta var það fyrsta sem óhlutdrægur þáttastjórnandi hefði borið undir formann Samfylkingarinnar, enda ein helsta frétt vikunnar. Hvers vegna GMB taldi mál seðlabankastjóra ekki fréttnæmt er í hæsta máta furðulegt. Næsta sunnudagsmorgun skal ég ekki láta það henda mig að nenna ekki að taka útvarpið úr sambandi þegar klukkan slær 11. Það vill svo til að ég og aðrir skattgreiðendur borgum GMB kaup fyrir starf hans sem þáttastjórnandi. Hann er ekki þarna á einkarekinni trúarstöð þar sem hann og viðmælandinn geta fabúlerað í innihaldslausum frösum um fyrirheitna landið.