Laugardagur 16. nóvember 2013

Vefþjóðviljinn 320. tbl. 17. árg.

Aðeins einn borgarfulltrúi stóð með skattgreiðendum þegar gera átti þá ábyrga fyrir Hörpunni og Icesave.
Aðeins einn borgarfulltrúi stóð með skattgreiðendum þegar gera átti þá ábyrga fyrir Hörpunni og Icesave.

Sjálfstæðismenn í Reykjavík halda í dag prófkjör vegna borgarstjórnarkosninga næsta vor. Þar er mannval að vanda ef marka má mannkostalýsingar á frambjóðendum á Facebook og víðar.

Vefþjóðviljinn vill kannski vekja athygli á tveimur málum í þessu samhengi, enda bæði margrædd á þessum síðum.

Annars vegar byggingu Hörpunnar sem er stærsti skellurinn sem skattgreiðendur í Reykjavík hafa fengið frá borgarfulltrúum vitandi vits. Aðeins einn borgarfulltrúi greiddi atkvæði gegn þessari risaskuldbindingu sem er enn að vinda upp á sig.

Hins vegar má nefna síðasta Icesave samninginn sem forysta Sjálfstæðisflokksins studdi þvert gegn skýrri landsfundarályktun og hlaut að launum rassskellingu í síðustu þingkosningum. Aðeins einn borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins lagðist opinberlega gegn þeirri ánauð.

Svo vill til og er raunar ekki tilviljun að það var sami borgarfulltrúinn sem stóð vaktina fyrir skattgreiðendur í báðum málum. Kjartan Magnússon.