Fimmtudagur 24. október 2013

Vefþjóðviljinn 297. tbl. 17. árg.

Það er ekki nóg með að útblástur úr strætisvögnunum sé meiri en úr venjulegum heimilisbíl heldur er útblástur Dieselvéla eins og strætó gengur fyrir talinn sérlega hættulegur.
Það er ekki nóg með að útblástur úr strætisvögnunum sé meiri en úr venjulegum heimilisbíl heldur er útblástur Dieselvéla eins og strætó gengur fyrir talinn sérlega hættulegur.

Á undanförnum árum hafa íslensk stjórnvöld reynt að ýta undir notkun bíla með Dieselvélar. Með því að tengja skatta á bæði bíla og eldsneyti við útblástur á koltvísýringi (CO2) hallar á flestar bensínvélar í samanburði við álíka Dieselvélar.

Þessi stefna hefur verið réttlætt með því að draga þurfi úr losun gróðurhúsalofttegunda á borð við koltvísýring. Dieselvélar eru taldar hafa vinninginn í þeim efnum, þær gefa minni koltvísýring frá sér á ekinn kílómetra. Á árinu 2010 var til dæmis hætt að miða bifreiða- og vörugjöld á bíla við vélarstærð og skattarnir tengdir magni koltvísýrings ( CO2 ) í útblæstri bílsins á hvern ekinn kílómetra.

En koltvísýringur er ekki skaðlegur heilsu vegfarenda, koltvísýringur í útblæstri bíla skaðar ekki íbúa borga eða aðra þá sem eru í nálægð við bílaumferð. Það eru hins vegar agnir í útblæstri Dieselvéla taldar gera. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin færði útblástur frá Dieselvélum nýlega úr flokki efna sem valda líklega krabbameini í flokk þeirra sem valda því örugglega.

Eru íslensk stjórnvöld alveg viss um að þau vilji halda þessu Dieseldekri áfram?