Föstudagur 26. apríl 2013

Vefþjóðviljinn 116. tbl. 17. árg.

Handlaugin ber vask, toll og vörugjald.
Handlaugin ber vask, toll og vörugjald.

Ha lækkar vöruverð ef skattar lækka? Já virðisaukaskattur, tollar, vörugjöld og ýmis umhverfis- og neyslustýringargjöld leggjast á alls kyns  varning. 

 Á venjulega handlaug leggst til að mynda 10% tollur, 15% vörugjöld, úrvinnslugjöld á umbúðir og auðvitað 25,5% virðisaukaskattur ofan á allt saman. Vegna þessara gjalda má gera ráð fyrir að útsöluverð á handlaug sé 50% hærra en það væri ella (að teknu tilliti til 40% álagningar verslunar).

Svo er það auðvitað sérstakt furðuverk – til viðbótar við það hve háir þessir skattar eru – að hafa fjóra eða fimm skatta sem hrúgast hver ofan á annan.