Mánudagur 12. desember 2011

Vefþjóðviljinn 346. tbl. 15. árg.

Hvort sem MMR eða Capacent spyr vill um helmingur svarenda slíta ESB viðræðum. Fréttablaðið fær hins vegar aðrar niðurstöður.
Hvort sem MMR eða Capacent spyr vill um helmingur svarenda slíta ESB viðræðum. Fréttablaðið fær hins vegar aðrar niðurstöður.

Rétt eina ferðina gerir Fréttablaðið viðhorfskönnun um ESB með spurningunni:

Hvort myndir þú heldur kjósa: 1) Að draga til baka umsókn um aðild að Evrópusambandinu, eða 2) Að ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið og halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamninginn?

Fréttablaðið leggur mikla áherslu á að gera kannanir um þetta efni því fyrir nokkrum dögum gerði Capacent könnun fyrir ESB-sinna um sama efni þar sem spurt var með svipuðum hætti og Fréttablaðið gerir. Á sama tíma gerði MMR könnun um sama mál fyrir Andríki þar sem þjóðaratkvæðagreiðslu var ekki hengt við annan kostinn. 

Fljótt á litið virtust niðurstöður MMR og Capacent stangast á.

Ef rýnt var í niðurstöður voru þær hins vegar í meginatriðum þær sömu. Um helmingur svarenda vildi draga umsóknina til baka í báðum könnunum, 50% í könnun MMR og 47% í könnun Capacent. 

Það er hins vegar vart hægt að bera saman hina hliðina á peningnum þar sem könnun Capacent var skilyrt – boðið var upp á þjóðaratkvæðagreiðslu handa þeim sem vilja halda aðildarviðræðum áfram.

Niðurstöður Fréttablaðsins virðast hins vegar stangast verulega á við niðurstöður MMR og Capacent því aðeins 35% vilja samkvæmt könnun blaðsins slíta viðræðunum.