Mánudagur 10. maí 2010

130. tbl. 14. árg.

S eðlabankar Evrópulanda hafa í morgun hamstrað ríkisskuldabréf Grikklands og fleiri skuldsettra Evrulanda. Hlutabréf banka og fjármálafyrirtækja hækkuðu í kjölfarið. Auður var færður frá skattgreiðendum til hlutabréfaeigenda í bönkum.

Okkur er sagt að það sé verið að bjarga veslings Grikklandi, Spáni og Portúgal með því að Evrópusambandið, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og ýmis ríki heims taki sig nú saman og ausi fé í galtóman ríkiskassann í Aþenu.

En hverjum er í raun verið að bjarga? Jú þeim sem tóku þá fáránlegu áhættu að lána yfirskuldsettum ríkissjóði Grikkja.

Hvergi virðast þeir sem hafa hagað sér eins og fáráðlingar mega fara í þrot í friði fyrir „björgunaraðgerðum“.

Svo er þetta allt skrifað á reikning frjáls markaðar. Hve frjáls er sá markaður þar sem menn mega jafnvel ekki verða gjaldþrota?